www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Elsku Lifur.
Fimmtudagur, 09. febrúar 2006

Margeir er farin að hegða sér undarlega.

Hann er farin að gelta þegar ég fer með hann í búðir og svo pissar hann á gólfið í horninu á bakvið sjónvarpið. Ég skildi eftir vír sem ég leiddi í nærliggjandi innstungu í gær og ég á frekar von á því að hann hætti þessi pisseríi. Gæti líka hafa leyst gelt-málið líka. A.m.k. er geltið frekar aumingjalegt núna þannig að það heyrist varla.

Ég næ ekki ólinni sem ég keypti á Albert af Margeiri. Hann er búin að binda hana um ökklan á sér og sparkar í alla sem reyna að nálgast hann. Á endanum mun ég þurfa að nota róhipnólið á hann til að ná þessu af honum. Ég er ekki ánægð með það, á ekkert of mikið af þessu og þetta er dýrt stöff.

Ég er búin að vera stygðarlega dugleg undanfarna daga enda er ég að örmagnast úr þreytu. Ég ætla að sofa um helgina. Þetta er samt ágætt, það saxast smátt og smátt á verkefnin auk þess eru börnin og þá aðallega frumburðurinn alveg ofboðslega dugleg að hjálpa mér. Ég hef oftar en ekki komið heim úr vinnunni og þá er búið að þrífa alla íbúðina, setja í þvottavél og uppþvottarvél.

Ef ég ætti að sinna því líka þessa dagana þá væri ég líklega dauð.

Ég sendi þér ættleiðingarpappírana varðandi Albert, ekki gleyma að skrifa undir og senda mér þá til baka. Ég þarf að vera búin að fá þetta fyrir mánaðarmótin mars/apríl því líklega fæ ég Albert þá.

Þú getur ekki svarað mér hér þar sem Margeir fór inná serverinn um daginn og nagaði kommentakerfið í sundur. Ég held að hann þjáist af stressi. Prufaði að gefa honum valíum í morgun og hann varð allt annar dvergur. Ég á bara ekkert of mikið af því heldur. Ég kíki kannski á kommentakerfið um helgina, á samt ekki von á að hafa tíma til þess.

Annars.. hafðu það mjög gott og mundu að ég sakna þín og bíð eftir að þú komir aftur til mín.

Anna Laufey.


| anna | 10:08 |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web