Miðvikudagur, 01. febrúar 2006
Ég mætti konu sem ég kannast við í morgun þegar ég fór í vinnuna - fyrir hreina tilviljun. Ég spjallaði við hana í kannski.. fimm mínútur. Sagði henni frá Albert.
Hún er alveg rosalega hrifin af svona hundum og bað mig endilega að sýna sér Albert þegar ég fengi hann, sagði mér að hún hefði samt á tilfinningunni að ég yrði ekki ein með Albert lengi og að það væri stutt í að ég myndi hella mér útí samband - og ég brosti.. því ég kæri mig ekki um það.
Rétt áðan fékk ég póst frá henni.
Hæ Anna
Ég dró spil fyrir þig og þetta kom fram.
Þú hefur markvisst dregið þig frá umhverfi þínu á einhvern hátt og er það eingöngu af hinu góða ef þú ert þar með að styrkja sjálfið.
Sem segir ekkert annað en það sem þú varst að segja mér.
Þér gæti mislíkað það sem er að gerast í kringum þig eða þú finnur þörfina á að vera í einrúmi og huga að persónulegum þörfum og jafnvel tíma til að huga betur að eigin líðan.
Hér er talað um að þú ættir að ákveða hvað skal aðhafst án áhrifa annarra. Lausn vandans liggur innra með þér og svarið fæst fyrr en síðar. Skilaboð hjarta þíns, vellíðan og vanlíðan munu vísa þér á rétta braut.
Ég var of mikið að hugsa um það sem ég veit um þig og bað um að það truflaði ekki, þannig að ég fékk enga innsýn á þig. En eftir stendu að ákvörðunartaka þín stendur í spilinu og þegar ég dreg fyrir lífi þínu sem maka (ástarlífinu) kemur þetta
Það er mannlegt að horfa á það sem hefur mistekist.
Hér ert þú minnt á að þú hefur lag á að færa þér auðlindir heimsins persónulega í nyt. Útlit þitt og gáfur eru uppsprettur sem auðvelda þér að ná því sem þú þráir þegar tilhugalíf þitt er annars vegar.
Og hafðu það, ef 51% er gott við einhvern sem þér þykir vænt um þá er það nóg til að viðhalda sambandinu. Tvö prósent nóg. Ertu meyja eða hvað að gera svona miklar kröfur?
(hehe ég er meyja en það hefur sýnt sig að ef eitthvað er.. geri ég of litlar kröfur)
Eitt stærsta verkefni þitt er að sleppa takinu af gömlum minningum og lifa algjörlega í nútíðinni ef þú kýst að upplifa gleði samhliða nýjum kafla sem birtist hér.
Ekki ásaka sjálfa þig fyrir eitt né neitt. Það sem er í dag er flott. Þú ert í blóma lífs þíns
Þú veist hvenær þú hefur á réttu að standa og innst inni skynjar þú eðlilega rás atburða og túlkar það yfir í vef sambandsins sem hér um ræðir. Þú sýnir ást þína og umhyggju í verki og veist að karma annarra er ekki á þínu valdi - þeir verða að taka ábyrgð á sjálfum sér.
Sjaldséð birta einkennir sambandið með lífsgleði, frelsi, heilbrigði og ótæmandi starfsorku. Þú ættir að veita athygli því andlega og tilfinningalega jafnvægi sem ríkir hér.
Halló! Þú ert í einhverskonar sambandi við einhvern mann hvort sem þú ert í afneitun eða ekki. Og þarna færðu fyrirmæli um að loka þig ekki af með ” hundinum Albert”
--
Vitiði.. ég ætla samt að loka mig af með hundinum Albert. Eini maðurinn sem ég er í "sambandi" við er Lifur.
Og það samband er nóg fyrir mig, þrátt fyrir að ég veit að það mun aldrei teygja sig út fyrir landamæri Internetsins.
Segið svo að ég geri of miklar kröfur..
Ef ég væri ekki búin að lofa Lifur að vera dugleg að skrifa.. þá væri ég lítið hérna þessa dagana. Ég hef ekki um neitt að skrifa - nema Albert - og þegar Lifur er ekki til að bulla með mér.. þá er ég bara blankó. Ég er svoleiðis á kafi í vinnu að ég fæ smá samviskubit í hvert sinn sem ég fer hingað inn.
Næsta mál á dagskrá er að klára að setja saman pöntun og kaupa það sem ég þarf að kaupa fyrir Albert á netinu og klára pöntun á því sem ég þarf fyrir nýja áhugamálið mitt, sem ég hef aldrei minnst á hér en mun líklega gera það einn daginn. Enn ein afþreyingin sem ég get stundað á meðan ég er "að horfa" á sjónvarpið. Ég er ekki búin að horfa á sjónvarpið síðan um jólin.
Þegar þetta pöntunardót er frá þarf ég að koma upp rútínu á heimilið aftur og finna tíma til að fara í ræktina til að fá andorfín-kikk once in a while.
Svo er það bara.. vinna/borða/vinna/sofa.
Endurtakist eftir þörfum.