www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kannski eru raunverulegu verðmætin í vinum þínum.
Þriðjudagur, 14. febrúar 2006

Þetta var sagt við mig um daginn.

Ég fór að hugga Huga eftir bíó. Hann veit alveg að mér er ekkert illa við karlmenn í alvörunni. Mér finnst hinsvegar gaman að alhæfa og mér finnst líka gaman að skrifa eins og ég sé mjög bitur kona. Það er bara þannig. Auk þess hentar mér mjög vel að hræða karlmenn í burtu frá mér þessa dagana.

Ég er að finna sjálfa mig.

hehehe, æji má maður koma með smá klisju once in a fucking while hérna, come on!

(ég er hinsvegar ekki að grínast með fíklana, mér er dauðans alvara með það mál)

Reyndar var Hugi læstur úti akkúrat á sama tíma og ég var að koma heim úr bíó og þar sem ég hef aukalykla var ég svo góð að hleypa honum inn - og mér í heimsókn í leiðinni. Ég borðaði hann útá gaddinn. Ég er svona manneskja sem fólk elskar að fá í heimsókn.. því það er svo gaman þegar ég fer.

Nema hvað.

Hugi veit að ég á iPod sem ég nota aldrei svo til þess að stuðla að aukinni notkun þá gaf hann mér VÖGGU FYRIR HANN!

Hugi var nefnilega að hlusta þegar ég sagði honum að iPoddinn minn verður alltaf rafmagnslaus um leið þegar ég nota hann og hann veit að ég er með tölvuna tengda við magnara og það er eitthvað fokk í gangi með hljóðkortið þannig að stundum er tónlistin öll bjöguð þegar mig langar að spila svo ég get ekki spilað.

SVO HANN GAF MÉR VÖGGU SEM ÉG GET TENGT Í MAGNARANN OG SPILAÐ ÓBJAGAÐA TÓNLIST Í GRÆJU SEM VERÐUR EKKI BATTERÍSLAUS!

Ég er ekkert smá þakklát Hugi, TAKK!! smile

Ég vissi í alvöru ekki að það væru til svona menn. Sem actually hlusta á það sem ég er að segja og fara svo og kaupa handa mér hluti sem gera líf mitt þægilegra. Bara uppúr þurru!

En það sagði mér líka einu sinni vitur kona að það er hægt að komast að svo mörgu um fólk ef maður skoðar bara hvernig gjafir það gefur þér. Þessi gjöf segir mér t.d. eftirfarandi:

a) Hugi, eins og fyrr sagði, hlustar á það sem ég segi við hann
b) Hugi eyddi tíma og peningum í eitthvað sem hann vissi að gæti gert líf mitt léttara/skemmtilegra (vil benda á að ég vissi það ekki sjálf)
og c) Huga þykir raunverulega vænt um mig.

Það getur nefnilega hver sem er farið í fatabúð og sagt: "ég ætla að fá skyrtu í stærð bla", það geta hinsvegar ekki allir gefið þér gjafir sem þig langar í og ert ánægður með. Það krefst vinnu af hálfu gefandans.

Hugi. Takk fyrir að vera vinur minn og takk fyrir að vera svona góður við mig. Og takk fyrir að gefa mér þetta.. þrátt fyrir að þú vitir að ég kem til með að blasta diskó allar helgar!

Líklega er það rétt. Raunverulegu verðmætin í þessu lífi er í vinum þínum, ekki þeim sem þú sefur hjá. A.m.k. á það við um mig, karlmenn sem ég sef hjá virðast aldrei hlusta á orð sem ég segi. Ég veit reyndar um konur sem eiga menn sem hlusta á þær og gera svona hluti. Mér fannst það bara samt eiginlega vera hálfgerð.. urban legend. Kannski er þetta til.. í alvörunni.

vaggan.jpg

iPoddinn er kominn uppá skjáinn hjá öllu uppáhalds dótinu mínu. Þarna er t.d. froskurinn minn, þetta var einu sinni myndarlegur karlmaður sem ég fann í gleraugnabúð á Laugaveginum um árið og breytti honum í frosk til að eiga seinna þegar ég hef meiri tíma. Ég hef ekki tíma í að sinna karlmanni núna, það er fullt starf. Pókemon kisan sem er óþekk og uppátektarsöm og ég held uppá hana. Cheshire cat sem er uppáhalds kötturinn minn í öllum heiminum, á eftir Köllu Kisuljóns, listaverkinu sem Jóhanna bjó til fyrir mig, fallegasta listaverki sem ég hef á ævinni séð, myndinni af Albert og bróður hans og Emperor Zurg.. sem ég tímdi ekki að setja aftur niður í geymslu og stundum þegar ég er einmana þrýsti ég á hnappinn á maganum á honum til að heyra hann segja "now you have given me total power" og svo skýtur hann mig í tætlur.

Mér finnst það.... sætt.

Vitiði.. þegar ég hugsa málið.. þá er ég umkringd fólki sem er nákvæmlega svona. Það hlustar á það sem ég segi og það gerir sæta hluti fyrir mig þegar ég á alls ekki von á því.

Ég á vini.

Ég er í raun verulega lánsöm manneskja.

Það aukast annars alltaf líkurnar á því að innan fárra ára hætti ég að vera skrifstofustjóri og breytist í framkvæmdarstjóra. Það verður gaman. Ég held nefnilega að ég sé verulega góður framkvæmdarstjóri.

Divide et impera.

Divide et impera.


| anna | 22:33 |
comments

Framsóknarblaðamaðurinn sem ég var gift gaf mér alltaf forkunnarljótar nælur við öll tækifæri. Hef ég grun um að hann hafi ekki verið vinur minn og ALDREI hlustað á það sem ég segi......því ég hef aldrei á ævi minni gengið með nælur, hvað þá langað í þær.

Hver gengur með nælur? nerd

Vinkona mín gaf mér hins vegar mörgæsabubblubað.......sem er notó að liggja í og fær mig til að slaka á og brosa - (sem hún veit að ég vil gera miklu oftar )- því mér finnst mörgæsir mjög broslegar og bubblubað gott.

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 15.02.2006 | 0:32:51 | [+] |

Framkvæmdastjóri? Ég hélt þú hefðir metnað anna! Hvað varð um demantskreyttu hálsólina á Albert? Evil overlord og ekkert minna! melodramatic

Nr. 2 | posted by: Kalli | 15.02.2006 | 5:46:05 | [+] |

Mér finnst þú heldur hörð við hjásvæfurnar. Kannski er bara lífsins ómögulegt að hlusta á þig nakta. Ég veit t.d. að ef ég vil ræða eitthvað alvarlegt við manninn minn fer ég í víðan serk yfir rúllukragapeysu. Að segja eitthvað nakin við karlmann er eins og að horfa á góða blablamynd án hljóðsins. Hefur engin áhrif.
En vinir eru góðir, bestir, það er sko alveg hreina satt.

Nr. 3 | posted by: parisardaman | 15.02.2006 | 8:12:26 | [+] |

Hugi, Hugi, Hugi. Fuss, ég hef heyrt að þessi maður leggi lag sitt við álfa og dverga og huldfólk, og ég mundi vera varkár nálægt honum.

Nr. 4 | posted by: Ný ímynd no.1 | 15.02.2006 | 10:47:30 | [+] |

Akkúrat Linda. Gjafir sem gera líf þitt betra. Þetta er ekki flókið.

iss.. ég segi aldrei neitt af viti þegar ég er nakin hvort sem er svo það er eins gott að þeir hlusta ekki á mig þegar ég er þannig.

Ég er að tala um þegar ég er fullklædd.

Ný ímynd no. 1. Nei, þetta er ekki að gera sig. Þetta er tómt rugl. Hugi þolir t.d. ekki Margeir.

Nr. 5 | posted by: anna | 15.02.2006 | 11:46:20 | [+] |

"Raunverulegu verðmætin í þessu lífi er í vinum þínum, ekki þeim sem þú sefur hjá."

-Hmmm... Er þá ekki bara ráðið að sofa hjá vinum sínum? Eða sefur þú kannski bara hjá óvinum þínum?

Nr. 6 | posted by: Eva | 15.02.2006 | 12:09:51 | [+] |

Það var gott, ég nefnilega trúi ekki á dverga. Má ég þá frekar biðja um fallegt stofublóm eða góðan feminista.

Nr. 7 | posted by: Ný ímynd no. 1 | 15.02.2006 | 12:32:48 | [+] |

You got it! colgate

Nr. 8 | posted by: anna | 15.02.2006 | 12:35:54 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web