Þriðjudagur, 14. febrúar 2006
Eitt af því sem mér finnst leiðinlegast af öllu í heiminum að gera er að versla í matinn. Aðallega vegna þess að ég versla í Kjörbúð Jóhannesar og þar er alltaf allt tómt klukkan fimm á daginn og svo eru langar biðraðir af fólki og..
Ég kaupi alltaf sömu hlutina. Nema þá sjaldan sem ég ákveð að elda eitthvað alveg nýtt.. og ég gæti nú farið sjálf að versla í þau skipti.
Er engin sem býður upp á þessa þjónustu á vægu verði?
Af hverju getur maður ekki gerst áskrifandi af vörum eða bara pokum af vörum í verslunum? Maður gæti t.d. skrifað undir samning þess eðlis að í hvert skipti væri einhver ný vara í pokanum sem maður gæti prófað. Gætu heildsalar notað þetta sem ódýra vörukynningu.
Djöfull leiðist mér styggðarlega mikið að versla.
Annars fór ég á Fjalaköttinn í hádeginu að hitta vinkonu mína sem er.. SURPRISE! ófrísk. - En mikið djö.. lítur hún vel út.
Ég var að segja henni frá policy-inu mínu með alkóhólista. Ég deita ekki þannig menn. Hún skilur mig fullkomlega.