www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ný þvottavél - raunveruleiki
Miðvikudagur, 22. febrúar 2006

Í dag gerðist svolítið sem gerir mér kleyft að fara niður í Bræðurna Ormsson á morgun og kaupa mér drauma þvottavélina mína!

Ég get hreinlega ekki beðið.

Þeir sem vilja fylgjast með mér henda gömlu þvottavélinni niður af svölunum er boðið á bílastæði Vesturbæjarlaugarinnar á morgun stundvíslega klukkan sextán núll núll.

Ég hef aldrei hent neinu svona stóru framaf svölunum áður og kann ekki við annað en að tilkynna það með fyrirvara svo sköllótti, óbís, ljóti nágranni minn á fyrstu hæðinni sé ekki að valhoppa þarna um í garðinum á nærbuxunum, eins og hann á til að gera, á ókristilegum tímum á meðan venjulegt fólk er að vinna. Hann gæti fengið vélina í hausinn.

Svona er ég nú tillitsöm og góð kona.

Hver veit! Kannski getur hann nýtt sér gömlu þvottavélina eitthvað! Ef hann vantar t.d. athygli getur hann kveikt á henni og sett á suðu. Þá rofnar oft hljóðmúrinn.


| anna | 15:52 |
comments

það var nú fínt að heyrasmile ég á einmitt svona "par" frá AEG, svaka flottar græjur sem ég keypti við skilnaðinn - þoli ekki léleg verkfæri og drasl græjur, nóg annað að ergja sig yfir

Nr. 1 | posted by: baun | 22.02.2006 | 17:24:34 | [+] |

Nákvæmlega. Það er sko alveg nóg af öðru til að ergja sig yfir. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 22.02.2006 | 17:46:09 | [+] |

En..........hvað gerðist?? Togari í höfn eða..............?

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 22.02.2006 | 18:22:22 | [+] |

anna. Getur þú nokkuð innheimt sölulaunin fyrir mig hjá Ormsson?

Nr. 4 | posted by: igor | 22.02.2006 | 22:12:04 | [+] |

Nýja sendingin frá Candy kom í hús hjá Pfaff í dag og þeir létu mig vita, hálfum mánuði á undan áætlun. Ég náði í gripinn rétt fyrir lokun. Sambyggð þvotta-/þurrkvél og heitir það sama sú sem gaf upp önd nýlega eftir 18 ára dygga þjónustu. Einn góður granni er verkstæðismaður hjá Ormsson og viðurkenndi að AEG hefði ekki treyst sér fyrr en nýlega að bjóða slíkar vélar, en bauð mér afslátt út á grannskap. Heimilið valdi þó Candy á ný ekki hvað síst fyrir orð Hreins þvottavélasérfræðings Íslands og hún er komin í gagnið. Frábært að þurfa ekki lengur að fjarþvo hjá tengdó - í AEG sem lekur! OK, AEG auglýsti á Valsbúningum sem er meiri synd en að Candy hafi sést á Liverpoolbúningum um skeið.
Mest kom þó á óvart að þurfa ekki að borga fyrir að henda þeirri gömlu í Sorpu.

Nr. 5 | posted by: BIRD | 23.02.2006 | 1:18:59 | [+] |

Igor: Það gæti reynst pínu erfitt, Ormsson er ekki að fá nein. smile

BIRD: Veistu. Þó Candy væru bestu þvottavélar í öllum heila heiminum með ISO gæðavottun frá Guði, gæti ég ekki hugsað mér að kaupa þannig vél. Ég varð fyrir áfalli sem barn þar sem Candy vél kom við sögu. Það var ekkert lítið biluð þvottavél. melodramatic

Nr. 6 | posted by: anna | 23.02.2006 | 9:59:11 | [+] |

Ég á einmitt líka svona AEG par og er þetta fullkomið par. Nú er ég jafnvel að pæla hvort ekki sé sniðugt að bæta við þriðja tækinu í þvottahúsið. Sum sé annarri þvottavél þar sem barnaföldinn á heimilinni er kominn upp úr öllu valdi. Þetta eru frábærar vélar en það tekur tímana tvo að þvo!!!
Átti Whirlpool þvottavél og uppþvottavé og daginn sem þær áttu 5 ára afmæli þá gaf heilinn sig og hagstæðara var að kaupa nýtt en láta gera við..... Það sem var þó verra að þetta gerðist á 5 mánaðartímabili og þurrkarinn söng sitt síðasta þeim til samlætis gnasher

Nr. 7 | posted by: eddið | 23.02.2006 | 18:42:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web