www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Vogue
Sunnudagur, 01. janúar 2006

Rétt fyrir áramót gerðist ég áskrifandi af breska vogue og bráðum fæ ég fyrsta blaðið sent til mín. Ég segi öllum að ég sé að þessu vegna þess að ég er að setja saman skothelt flottroll og þarf hjálp fagmanna.. en sannleikurinn er sá að vogue er besta blað í heimi - til átu.

Ég er bara að tala um breska vogue. Þetta franska er of þurrt, ameríska hleypur í kekki uppí manni og þetta ítalska.. well.. það er næst best. Ég veit ekki hvort það er pappírinn eða blekið, jafnvel límið á kilinum - eða allt þrennt sem orsakar þetta himneska bragð. Er svo gott fyrir góminn líka.

Bókstaflega engu líkt og ef borið fram með volgri hóstasaft má eiginlega segja að maður deyji og fari til himna. Pabbi veit ekki ennþá hvað gerðist daginn sem hann stakk uppí sig litlum bolta úr skál á stofuborðinu og chase-aði með skoti af norskum brjóstdropum.

Ég hef borið við minnisleysi til að þurfa ekki að deila með honum þessum rándýru eintökum af vogue sem ég kaupi til hátíðarbrigða í Úlfarsfelli.

Þegar ég áttaði mig á því að ég gæti fóðrað þessa áskrift með flottrollspælingum OG tek með í reikninginn að ég þarf ekki að kaupa mér ilmvatn á meðan ég er áskrifandi var þetta ekki nokkur einasta spurning.

Rassgat ef það er satt sem ég heyri á stigaganginum; að maður má bara kaupa eina flösku af pektólín í einu..


| anna | 20:46 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web