www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Viðburðaríkur dagur
Sunnudagur, 08. janúar 2006

Ég byrjaði á því að sofa yfir mig á fund sem ég átti að mæta á klukkan tvö. Þegar ég vaknaði teygði ég úr mér og horfði uppí loft í smá tíma áður en ég leit á klukkuna.. og fékk sjokk. Tvær mín yfir tvö!

Það er ljóst að ég verð að hætta að vinna á nóttunni.

Ég hringdi í fólkið sem ég var að fara að hitta og þau voru svo yndisleg að fresta fundinum um klukkutíma.

Á þessum fundi hitti ég í fyrsta sinn á ævinni hvolpa.

Papillon hvolpa.



Þvílíkar og aðrar eins dúllur. Ég er að fara að gera heimasíðu fyrir ræktandann þeirra. Sagði þeim náttúrlega allt um Albert og nú get ég hreinlega ekki beðið eftir að Albert fæðist og flytji til mín!

Þegar fundurinn var búinn náði ég í frambjóðandann á kosningaskrifstofuna og keyrði hana heim. Þar héldum við smá fund og frá henni fór ég á annan fund. Sá fundur átti sér stað á Oliver. Fékk mikið af mikilvægum upplýsingum sem ég kem til með að nýta mér á næstu dögum.

Þegar ég kom heim tók ég niður jólin áður en ég fór að vinna. Fyrir þessi jól fjárfesti ég í plastkössum fyrir jóladótið, enda var jólakassinn að hruni kominn.

jolin.jpg

Mæli með að geyma jólin eins og kók. Í plasti.

Ég tók reyndar ekki niður nokkrar skrautseríur. Finnst soldið kósí að hafa þær uppi auk þess sem þær eru ekkert jólalegar. Ekki þannig..

100_04821.jpgÞegar því var lokið fór ég að vinna og þegar ég var búin setti ég upp fyrstu auglýsinguna á anna.is eins og fólk sem þjáist ekki af umhverfisblindu hefur sjálfsagt tekið eftir.

Jólin eru búin og mér finnst það ágætt. Ég setti upp jólatréð og skreytti þremur dögum fyrir jól - minnir mig - og er dauðfegin að losna við þetta. Alveg passlegur tími fyrir minn smekk.

Eftirminnileg, afdrifarík og.. góð jól í ár.

Mjög góð.


| anna | 1:35 |
comments

Ertu ekki að grínast? Hefurðu aldrei séð hvolpa fyrr??? chococat

Nr. 1 | posted by: Eva | 8.01.2006 | 10:39:18 | [+] |

Neibb. Aldrei svona litla.

Það er í raun alveg ofboðslega margt sem ég hef aldrei gert eða séð áður. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 8.01.2006 | 13:33:21 | [+] |

Sjálfstæðisflokkurinn? ... En líst vel á að hafa jólin í plasti. Gleðilegt ár smile

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 8.01.2006 | 17:50:43 | [+] |

Jebb. Sjálfstæðisflokkurinn. -Eða.. mamma.

Þú veist.. the things I do for love.

wink

Gleðilegt ár sömuleiðis!

smile

Nr. 4 | posted by: anna | 8.01.2006 | 20:11:30 | [+] |

Mæður eru yndislegar og skilja allt eins og Stefán Jónsson uppgötvaði á síðustu öld. Þess vegna verðskulda þær líka allt, jafnvel þó þær séu í Sjálfstæðisflokknum. Ég vona að henni gangi vel.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 9.01.2006 | 0:56:10 | [+] |

Takk Alan! Já, þær verðskulda allt. Það er bara þannig!

Nr. 6 | posted by: anna | 9.01.2006 | 1:33:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web