www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Úr álögum
Sunnudagur, 01. janúar 2006

Um leið og ég opnaði augun í morgun fann ég að mig langaði í kjól og þar sem ég fékk óvænt peninga í gær fyrir vel unnin störf stóð nákvæmlega ekkert í vegi fyrir að ég fengi mér einn.

Nema kannski valkvíði.

Fór í Kringluna og byrjaði í Karen Millen. Spurði afgreiðslukonuna hvort hún ætti "litla svarta kjólinn".

Fyrir þá sem vita ekki hvað litli svarti kjóllinn er: "the little black dress is a no-fail option". Þekkt concept og ég varð mjög hissa þegar konan skildi ekki hvað ég var að fara. Ég útskýrði fyrir henni að ég þyrfti svartan kjól sem væri ekki of mikið glam og ekki of hversdagslegur. Kjól sem væri hægt að nota við öll tækifæri. Hún átti hann ekki til. Næst fór ég í Kultur. Sama sagan. Afgreiðslustúlkan starði á mig og ég beið eftir að hún byði mig velkomna til jarðar. Eftir að ég hafði útskýrt þetta fyrir henni fékk ég sömu niðurstöðu.

Engin lítill svartur kjóll.

Nú veit ég btw loksins hvað varð til þess að klassískar barnabækur eins og "litli græni hatturinn" og "litla bláa kannann" voru skrifaðar.

Þriðja búðin sem ég fór í var Oasis. Let's face it. Ég er manneskja sem lærir hreinlega ekki af reynslu, bý yfir alveg takmarkalausri bjartsýni og trú á mannkynið í heild.. enda spurði ég afgreiðslustúlkuna í Oasis hvort hún ætti litla svarta kjólinn.

Þessi kona, þó hún væri liðlega helmingi yngri en afgreiðslukonurnar sem ég hafði spurt í hinum búðunum.. vissi nákvæmlega hvað ég var að tala um. Hún sagði ekki orð, mældi mig örlítið út, brosti.. svona eins og fólk brosir þegar það veit... að það hefur sigrað.. gekk á undan mér að fataslá og dró fram.. litla svarta kjólinn.

VIRÐING!

[Ég hef ákveðið að taka upp þetta orð meira í skrifum mínum - til heiðurs Lifur. Eða "lotning", eftir því hvernig skapi ég er í.]

Þegar ég sá hann trúði ég varla mínum eigin augum. Þetta var of gott til að vera satt. Ég fór í mátunarklefann.

kjoll.jpgEkki mjög erfið ákvörðun. Þessi kjóll er sem sniðinn utaná mig. Ég notaði fyrsta gjafabréfið af fimm til að borga þessa.. fjárfestingu. Ég hef átt litla svarta kjóla áður, en engin þeirra hefur verið litli svarti kjóllinn.

Þú veist, þessi.. rétti.

Enda þegar ég kom til mömmu í dag sagði Beggi einfaldlega: "vá", þegar hann sá mig. Áður en kvöldið var úti höfðu bæði mamma og Júlía bæst í þann hóp.

Þetta er svo gaman! Ég get ekki beðið eftir að fara á mánudaginn og kaupa öll hin fötin sem ég lét taka frá fyrir mig í annarri verslun. M.a. litla svarta pilsið - sem allar konur verða að eiga og svartar buxur - sem ég er ekki búin að eiga lengi því þessar gömlu eru allt of stórar á mig og og og..

Vá mér leið eiginlega eins og.. fokking barbie í búðinni (sjá hendleggi á mynd) sem ég lét taka flest dótið frá fyrir mig! Djöfull er geðveikislega gaman að kaupa föt þegar maður á peninga. Og þegar það eru útsölur. Og þegar fötin eru úr einhverju öðru en rusli. OG PASSA Á MANN! Shit. Góðar líkur á að ég gæti orðið húkkt á þessu sko..

Flottrollið tekur á sig mynd, sem er ágætt. Skilst að það eigi hvort sem er að banna botnvörpuveiðar innan x margra ára. Ég finn nú stæka decode lykt af því máli. Líklega liður í átaki við að hreinsa the gene pool.

Bygons.

Ég var in high spirits þegar ég kom heim og við krakkarnir drifum okkur til mömmu og Begga til að elda kalkúninn. Kom nú reyndar ekki nálægt því, mamma var búin að græja allt sem græja þurfti og kalkúnninn var einstaklega ljúffengur.

Gulli hennar Júlíu borðaði með okkur í kvöld. Hann fór fyrst að borða heima hjá foreldrum sínum og þar sem mamma fór í kirkju seinkaði matnum svo hann gat borðað með okkur líka.

Það eru fimm aðferðir, known to man, sem hægt er að nota til að sýna manneskju að þér þyki vænt um hana:

1. Þú getur sagt viðkomandi það með orðum.

2. Þú getur snert viðkomandi. (Haldið utanum, leitt, strokið, kysst.)

3. Þú getur eytt quality time með viðkomandi.

4. Þú getur gert eitthvað fyrir viðkomandi.

5. Þú getur gefið viðkomandi gjafir.

Það er augljóst að Gulla þykir vænt um Júlíu. Bara í kvöld borðaði hann tvisvar sinnum þríréttaða máltíð til að geta eytt sem mestum tíma með henni!

juliaoggulli.jpgStuttu eftir miðnætti þegar við vorum að skála kvað Júlía sér hljóðs og sagði okkur hinum.. að næsta sumar eru hún og Gulli að fara að gifta sig. Já. Gulli leiddi nefnilega hana Júlíu aðeins afsíðis þegar við hin vorum að horfa á mesta sprengjuregnið, dró upp demantshring og bað hana um að giftast sér.

Alveg eins og í ævintýrunum.

Sem er viðeigandi. Nú veit Gulli að ég er norn því ég bauð hann velkominn í fjölskylduna fimm mínútum áður en þau opinberuðu. "Þú sagðir þetta eins og þú vissir eitthvað sem þú gast ekki vitað", sagði hann eftirá. Jebb, ég á það til. Hér er t.d. hluti af bloggi sem ég birti ekki á sínum tíma:

AUTHOR: anna

TITLE: "Mikill karakter"

STATUS: Draft

DATE: 10/03/2005 11:48:52 AM

-----

BODY:

Hún systir mín er að fara að gifta sig á næsta ári. Hún veit það ekki ennþá. Tilvonandi eiginmaður hennar veit það ekki heldur. Ég er eina manneskjan í heiminum sem veit þetta og bið þig, lesandi góður, að hafa þetta fyrir þig, á sko að koma á óvart.

Systur minni tókst að grafa upp síðasta gilda sjálfstæðismanninn og hann er ekki með Asperger heilkennið. Mamma snertir hreinlega ekki jörðina úr kæti. Þar fyrir utan er hann fjármálaséní, myndarlegur, ofboðslega góður við hana systur mína og hreinlega ekkert út á manninn að setja."

--

I.. rest my case.

Eftir matinn settust allir í stofuna nema ég og mamma. Við fórum inn í svefnherbergi til að kíkja á smiðinn í gardínunum hennar. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði, kræst hvað mamma er fyndin. Og þarna er hann! Í gardínunum! Með naglana úr bakinu! Við hlógum svo mikið að Beggi sá ástæðu til að kíkja inn til okkar og á meðan mamma þurrkaði tárin af kinnunum sagði hún honum frá smiðnum í gardínunum og að hann væri alltaf þarna, að bíða eftir henni Önnu sinni. myndinfofanrumid.jpgBeggi benti okkur á að það væri nú ekki skrítið, það er nefnilega mynd af mér (tekin á "kick ass" árunum) fyrir ofan rúmið þeirra svo smiðurinn hefur mig fyrir augunum 24/7.

Aumingja vesalings smiðurinn í gardínunum hennar mömmu.

Þegar við komum fram vorum við spurðar að því hvað við hefðum eiginlega verið að gera þarna inní herbergi. Það er ekkert hægt að útskýra það nema með því að lesa færsluna sem ég skrifaði þennan dag svo ein af fartölvum heimilisins var sótt og færslan lesin upp fyrir liðið - sem fór svo í einni halarófu á eftir mömmu - að skoða smiðinn í gardínunum.

Og! Það sjá allir smið í gardínunum um leið og mamma bendir á hann. Við erum hinsvegar búnar að komast að því að þetta er ekki nagli sem stendur útúr bakinu á honum. Hann er líklega bara.. trekktur.

Eins og það sé ekki feykinóg að hafa smið í gardínunum, þá gaf mamma mér líka prins í álögum sem hún keypti í bandaríkjunum um daginn. Hún fór nefnilega að sjá hnotubrjótinn í Washington og keypti hnotubrjót fyrir mig - og Júlíu.

Iss.. ég sagði þeim að mér veitti nú ekkert af því að fá þá báða en nei.. mamma vildi að ég veldi mér annan. Ég hristi nú bara hausinn og benti henni á að ef ég ætti að velja væri gefið að ég myndi velja lúserinn. Mér er ekki sjálfrátt! Eina leiðin til að afstýra svona stórslysi væri að láta mig fá þá báða - meina.. Júlía er búin að finna prins og hann er ekki einu sinni í álögum!

prins.jpg

Á endanum völdu mamma og krakkarnir, því ég harðneitaði að velja, þann með kórónuna handa mér.

Aha.. yeah.

-og til gamans má geta þess að ef ég hefði valið... hefði ég valið hinn, svo þetta er líklega safe.

Krakkarnir voru í skýjunum bæði tvö með kvöldið og já, okkur fannst skaupið mjög gott en kannski var það bara stemmingin. Ég veit það svei mér þá ekki, er búin að heyra í svo mörgum sem fannst skaupið ömurð.

Mér er alveg sama. Það er komið nýtt ár! Með óvæntri hjálp byggingarvöruverslunnar hefur álögunum verið aflétt og ég fengið alveg fresh start. Stundum þarf maður smá hjálp við að sjá hlutina í samhengi.

Ég óska þér gleði og gæfu á árinu 2006. Njóttu þess að vera til og vertu góður við þá sem þér þykir vænt um.

Ef það skilar engu.. finndu þér aðra til að þykja vænt um.

hehehe

GLEÐILEGT ÁR!


| anna | 2:04 |
comments

Gleðilegt ár elsku Anna og takk fyrir það gamla.
Fresh start já, það er einmitt málið

Nr. 1 | posted by: Harpa | 11.07.2004 | 2:20:58 | [+] |

Gleðilegt ár Anna.
Takk fyrir skrifin þín. Megi þau áfram laða fram hugsun, bros og gleði yfir vel rituðum texta.
Kveðja, agust.o

Nr. 2 | posted by: agust.o | 11.07.2004 | 6:37:26 | [+] |

Gleðilegt ár, Anna.

Mér líður illa í svörtum fötum. En þessi litli svarti er æði.

Nr. 3 | posted by: Nanna | 11.07.2004 | 12:48:59 | [+] |

Gleeeeeeeeeeeedilegt ar! Eg er lika bjartsyn a sexuna, ekki spurning.

Nr. 4 | posted by: Atviksorda-Anna | 11.07.2004 | 15:35:56 | [+] |

Takk Nanna!

Ég er svo oft í svörtu að líklega hef ég verið grátkona í fyrra lífi eða er bara í stöðugri sorg.

Fer bara vel með það..

Gleðilegt ár stelpur! Sexan klikkar ekki!

Nr. 5 | posted by: anna | 11.07.2004 | 17:27:40 | [+] |

Gleðilegt ár!

Ert þetta þú að flagga little black dress?

Og já, fyrst lifur er fjarri góðu gamni; ég hefði líka valið hinn... mig vantar samt reyndar ekkert prins í álögum. Nema hann sé léttur á fóðrum og duglegur að þrífa.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 12.07.2004 | 13:37:24 | [+] |

Gleðilegt ár sömuleiðis! Já, þetta er ég og litli svarti kjóllinn minn!

Erum við ekki sæt saman? Ekki alveg eins sæt og Gulli og Júlía, but.. what are you gonna do.

Nr. 7 | posted by: anna | 12.07.2004 | 14:36:25 | [+] |

Gleðilegt ár anna.is

Og hamingjuóskir með little black dress. Þetta ár verður stórkostlegt, ég þarf ekki að sjá smiðinn í gardínunni til að sjá það

kv, Meinvill

Nr. 8 | posted by: Meinvill | 13.07.2004 | 8:20:49 | [+] |

takk Meinvill og gleðilegt ár!

Jebb. Það þarf ekki smiðinn til!

Nr. 9 | posted by: anna | 15.07.2004 | 9:41:10 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web