Þriðjudagur, 10. janúar 2006

Við vorum svo heppin í kvöld á kosningaskrifstofunni að fyrir utan fundum við tvo útburði. Börn sem voru borin út á árunum 91-92 og hafa búið á bifreiðaverkstæði Gunna sem er þarna bara í næsta húsi.
Annar útburðurinn var svona líka svakalega kátur að fá að sinna útburði - enda kom í ljós þegar við fórum að tala við þá að það var aðeins lengra síðan sá útburður var borin út.
Hann var ansi skrafhreifinn og sagði okkur frá því að 66north sponsar öll fötin þeirra því Kópavogsbær neitar tilvist útburðabarna og frambjóðandinn lofaði að beita sér í málefnun útburða, krefjast þess að þeir fái sömu réttindi og aðrir íbúar Kópavogs og jafnvel frítt í strætó!
Hinn útburðurinn var aðallega bara hræddur.
Held ég.
Hann talar ekki við ókunnuga.
Allavega. Við gáfum þeim vöfflur með rjóma og egils kristal áður en við héldum heim í kvöld. Búið að bera út í nærri öll hverfi í Kópavogi.
Ótrúlegt hvað þessir útburðir geta áorkað á stuttum tíma!