Hvað er fólk að kvabba yfir þessum starfslokasamningum öllum?
Skilur fólk ekki íslensku?
StarfsLOKAsamningur.
Fólk sem gerir svona samninga á aldrei að þurfa að vinna handtak aftur.
| anna | 15:51 |
comments
Það getur verið fjandanum erfiðara að finna út bestu ávöxtunarleiðir og svona, heilmikil vinna framundan í því. Fólk bara skilur þetta ekki. Kannski ekki von, það er svo fáum gefið að kynnast því hvernig þetta er.
Segðu. Það er mikil blessun að þurfa ekki að standa í þessu. Veistu hvað það er mikið stress og álag að eiga svona mikla peninga?
Úff..
Fólk sem eignast svona mikla peninga eyðir oft restinni af lífi sínu í að passa uppá þá og gleymir að vera til á meðan. Peningarnir veita hvorki því sjálfu né öðrum neina ánægju. Á skömmum tíma verður fólkið svo up tight að það getur gert sér að leik að troða kolamola uppí rassgatið á sér og sjá... eftir korter er kominn demantur.
Sem er reyndar lang, lang besta ávöxtunarleiðin, augljóslega.
Peningar eru bráðnauðsynlegir til að geta lifað lífinu, en ég sé ekki í hillingum að eiga svona mikið af þeim.
Ég myndi hinsvegar pottþétt ekki segja nei ef einhver vildi gefa mér svona upphæðir!
Nr. 2 | posted by: anna |
4.01.2006 | 19:28:50 | [+] |