Þriðjudagur, 10. janúar 2006

Þegar ég kom heim af kosningaskrifstofunni var blað í póstkassanum.
Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar, augljóst að þarna var fyrsta tölublaðið af Vogue áskriftinni minni mætt á svæðið. Ég opnaði póstkassann skjálfhent af spenningi og tók varlega utanum grátt plastið sem umlék helgidóminn og fjarlægði blaðið úr póstkassanum.
Ég sussaði á börnin alla leiðina upp stigann.
Maður er ekki með læti nálægt Vogue.
Þegar ég kom upp ætlaði ég að fá mér sæti í uppáhalds stólnum mínum, rífa plastið varlega utanaf blaðinu og fletta því.. en græðgin náði yfirhöndinni og ég var ekki sest þegar ég tætti utanaf dýrðinni í mikilli geðshræringu.
Þegar ég sá forsíðumyndina missti ég meðvitund.
Þetta eru ofsóknir, ofsóknir segi ég!