www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skápur með skúffum
Þriðjudagur, 03. janúar 2006

Mér finnst eitt mjög undarlegt. MJÖG undarlegt.

Það er janúar og ég er ekki á hausnum. Samt hef ég nú oft eytt töluvert minna í jólagjafir en í ár.

Þvert á móti. Í gær fór ég og náði í föt fyrir tæpann 40þúskall í Kringluna og fór með heim. Þegar ég kom þangað blasti við.. að ég þarf fataskáp. What's the point að kaupa sér vönduð föt ef þau eiga að liggja í kuðli á stól? Afraid it doesn't work.

Dreif mig í Ikea og kraftaverk átti sér stað! Skápurinn sem ég vildi var til. Það er nú saga til næsta bæjar þegar það gerist í Ikea. Ég mátti samt ekki vera að því að setja hann saman þegar ég var komin með hann heim, varð að þjóta á kosningaskrifstofu frambjóðandans til að skipuleggja og þrífa.

Þegar kosningastofan var komin á laggirnar dreif ég mig heim og setti skápinn saman, sem var töluverð þraut þar sem hann er svo hár að það er ekki hægt að setja hann saman nema uppréttann og.. það fylgdu ekki leiðbeiningar með honum.

Kom ekki að sök, við erum að tala um Ikea. Þú þarft að vera ansi verkblindur til að sjá þetta ekki út..

Langt síðan ég hef keypt mér eitthvað dót í Ikea og langar að vita hvort þeir eru orðnir alveg afhuga sexkantinum sem var vörumerki þeirra í eina tíð. Þurfti ekki að nota svo mikið sem einn sexkant til að setja neitt af þessu saman. Allt skrúfað. Vissi alltaf að það kæmi sér vel að eiga borvél.

Þegar ég var að skrúfa dótið saman hugsaði ég um hvað ég væri nú annars til í að eiga mann sem nennti að gera svona hluti fyrir mig. Eftir því sem ég eldist finnst mér leiðinlegra og leiðinlegra að skrúfa og bora. Mig langar miklu frekar að fylgjast með flottum manni gera þetta fyrir mig. Mér finnst það í alvöru talað miklu.. áhugaverðara.

Kannski marg borgar það sig að þykjast ekki geta neitt af þessum hlutum. Ég held að karlmönnum þyki það heillandi við konur. Að þær séu soldið ósjálfbjarga svo þeir geti mætt á svæðið og bjargað deginum. Held að þeim finnist ekki alveg jafn gaman að bjarga deginum hjá konu sem þeir vita að getur vel bjargað deginum sjálf.

Ég keypti háan skáp því lágir skápar fara í taugarnar á mér. Það er ekkert sem mig langar neitt sérstaklega að geyma uppá skáp - vil frekar geyma hluti inní skápum en ofaná þeim. Auk þess finnst mér háir skápar töluvert mikið fallegri, í 98% tilfella, en lágir skápar.

Ég splæsti í dýrari gerðina af skúffum. Ég hef notað vírakörfur og því miður.. það er bara ekki fyrir mig. Ég vil skúffur á brautum sem er auðvelt að draga út. Ef það er eitthvað sem pirrar mig þá eru það drasl skúffur í skápum. Víraskúffa kosta 780 stykkið. Skúffurnar sem ég keypti kosta 1990 stykkið. Þegar ég sat og beið eftir dótinu á lagernum fór ég að spá í hvort ég væri kannski biluð. Hver kaupir rúmlega helmingi dýrari skúffur en hann þarf að kaupa?

Þegar ég var búin að setja skúffurnar saman og í skápinn komst ég að því að.. nei. Ég er langt frá því að vera biluð. Maður þarf að kaupa svona dýrar skúffur. Möbelfakta prufar hverja skúffu í milljón og fimm skipti. Þó ég dragi þessar skúffur bara 100 sinnum út áður en ég drepst mun það vera 1990 kallsins virði.

Fact of life.

Þegar ég var búin að setja skápinn saman, þurrkaði ég innanúr honum og "flutti inn". Then it dawned on me.. ÉG Á FATASKÁP! EIN! Í FYRSTA SINN SÍÐAN ÉG FLUTTI AÐ HEIMAN! OG ÞAÐ ERU SKÚFFUR Í HONUM!


| anna | 10:53 |
comments

Til hamingju með skápinn!

Varðandi sjálfbjarga konur þá finnst mér það turnon en turnoff þegar konum virðist finnast ómögulegt að þær eigi að kunna eða geta eitthvað.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 3.01.2006 | 11:01:32 | [+] |

Ég er alinn upp af konum sem kunna að "redda". Mér finnst nú samt alltaf huggulegt þegar þær ( og aðrar ) leita til mín og biðja mig að redda, því þótt karlmenn eigi það til að vilja láta stjana við sig ( konur kalla það "stór börn" - mér finnst það full sterkt í árina tekið ) þá vilja karlmenn líka vera "þessir stóru sterku/kláru/..." fyrir þá/þær konu(r) sem máli skipta í lífinu.

Þetta snýst um að gefa og þiggja, og vita hvað má gefa og hvað má þiggja...

Ef karlmaður sker sig, þá á hann að "leyfa" konunni sinni að stjana við sárið - þá líður konunni betur ( þótt karlmanninum þyki ekkert tiltökumál að teipa bara fyrir og halda áfram )

Ef kona slasar sig, þá á karlmaðurinn að vera "hugrakki riddarinn" sem keyrir hana til læknis ( karlmenn "gera við" með "verkfærum" og eiga ekki að laga sár )

Þó svo að kona kunni að hreinsa út blöndunginn á bílnum og skipta um kúplingsdiskinn, þá á hún að "leyfa" karlmanninum að gera það ( nema hann sé yfirlýstur vanhæfur með verkfæri, en hvað er hún þá að púkka upp á hann hvort eð er ? wink ) því þá líður karlmanninum betur - besti tíminn er þegar vinkonurnar eru í heimsókn ( ef karlmaður veit ekki af því að hann er milli tannana á vinkonunum, þá hefur hann ekki áhyggjur af því )

Já, þig vantar karlmann sem á skrúfjárn smile

Nr. 2 | posted by: Þór | 3.01.2006 | 13:42:56 | [+] |

Mér finnst turnoff þegar karlmaður les blöðin á meðan kona er að bora hillu á vegg. Ég hef ekkert við þannig mann að gera.

Ef þú ert karlremba Þór þá er ég það líklega líka. Ég get alla þessa hluti. Ég er bara hætt að nenna því vegna þess að NÁKVÆMLEGA!

Ég vil fokking hetju sem gerir þetta fyrir mig!

Nr. 3 | posted by: anna | 3.01.2006 | 13:52:22 | [+] |

Ég fer allur að skjálfa og titra þegar Þór talar um konu sem getur skipt um kúplingsdisk. Ég er samt ekki alveg viss hvort það er af unaði eða hræðslu...

Nr. 4 | posted by: Kalli | 3.01.2006 | 17:50:19 | [+] |

Hvernig er það, fáum við ekki að sjá skápinn fræga sem þú varst svo snjöll að setja saman? Engin mynd? Please...

Nr. 5 | posted by: Níní | 3.01.2006 | 19:25:09 | [+] |

Kalli mér finnst þetta skerí.

Engar myndir? Engar myndir? Heldur fólk virkilega að ég hafi gert eitthvað án þess að það væru teknar myndir?

get real.. toungue

Nr. 6 | posted by: anna | 3.01.2006 | 20:45:31 | [+] |

Mér finnst þetta nefnilega skerí líka...

Annars finnst mér svakalega... áhugavert að sjá myndir af konu að setja saman IKEA húsgögn. Spurning hvort við getum reynt að græða eitthvað á þessu?

Nr. 7 | posted by: Kalli | 4.01.2006 | 7:23:49 | [+] |

VÁ hvað ég hló mikið að þessu kommenti Kalli. Já.. þú heldur að það séu peningar í þessu? Ég er in fact að hugsa um að kaupa mér BILLY bókaskáp á næstunni... wink clown

Nr. 8 | posted by: anna | 4.01.2006 | 9:13:51 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web