Miðvikudagur, 18. janúar 2006
Anna: "halló"
H: "blessuð, ég er hér að klippa efni fyrir frétt OG ÞÚ ERT Á MYNDUNUM!"
Anna: "Ert þú með þessa frétt? Já ég var á fundinum í morgun."
H: "Hvernig komstu inná þennan fund? Hvað gerðist þarna? Þú segir mér ekkert!"
Anna: "tjah.."
Ég verð að viðurkenna að maður kemst að ýmsu í pólitík. Sérstaklega þegar maður er mikið innan um vel plöggað fólk sem gefur manni innsýn inní hvað gerist á bak við tjöldin. Ég er actually orðin áhugasöm um pólitík og ég hélt að það yrði aldrei. Tek fram að ég ætla ekki, ég endurtek ekki í framboð.
Ég held að ég sé betur til þess fallin að vera.. á bakvið.
Við sátum hér á kostningaskrifstofunni fyrir framan sjónvarpið í gær og horfðum á fréttirnar.. og ég sofnaði í stólnum.
My 15 minutes of fame.. and I slept right through it.
Ég er náttúrlega snillingur...
Í dag sofnaði ég aftur í stólnum á kosningaskrifstofunni en í þetta skipti var Doddi til staðar til að ná mynd af því.

Ég held að hann sé að safna sönnunargögnum gegn mér þegar hann fer í mál sem fullorðin maður og krefst skaðabóta vegna þess að ég svaf í gegnum öll uppvaxtarár hans..