www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Pólitík
Föstudagur, 06. janúar 2006

Ég er búin að hjálpa mömmu að koma sér af stað í kosningabaráttunni sem mun taka enda 21. janúar n.k.

Hef aldrei fylgst mjög grant með pólitík, hvað þá hennar pólitík, má segja að þetta sé í fyrsta sinn á ævinni sem ég legg henni lið í þessari baráttu.

Satt að segja byrjaði ég með hangandi haus. Mínar minningar af pólitík eru endalaust helvítis bögg - sem dóttir pólitíkus. Endalausir fundir í skipulagsnefndum og kvöldmatur seint á kvöldin – ef það var þá kvöldmatur at all.

Mamma var aldrei heima og öll fjölskyldan lagðist gegn þessu "brölti" hennar.

Kosningabaráttan byrjaði fyrir alvöru núna í lok des og byrjun jan en það var ekki fyrr en ég fór að hjálpa henni að bera húsgögn á kosningaskrifstofunni í vikunni sem ég áttaði mig á því hversu öflug mamma er og hversu mikinn stuðning hún hefur meðal fólks af því hún er búin að vera í pólitík í mörg ár og þó að hún hafi ekki látið byggja neinar íþróttahallir né óperuhús þá vinnur hún fyrir samfélagið og það hefur skilað sér í velvild fólks í hennar garð.

Af því ég hef verið að vinna við síðuna hef ég þurft að skrá mig inná póstinn hennar og þar hef ég séð stuðningsyfirlýsingar frá fólki sem þekkir hana ekki neitt en hefur heyrt málflutning hennar og það sem hún stendur fyrir.

Það vita allir að leikskólamálin eru í hönk í Kópavogi og mér finnst tillaga hennar um að bjóða fólki uppá að vera heima með börnin til tveggja ára aldurs löngu tímabær eins og ástandi er - en ég gerði mér ekki grein fyrir að það væri hægt að greiða fólki svona mikið fyrir að vera heima með börnin án þess að borga krónu meira en fyrir leikskólapláss.

Ég myndi vera heima með barnið mitt í tvö ár ef mér byðist það. Hef auðvitað ekki efni á því núna, ég þarf meira en 100 þúsund á mánuði.. en ef ég ætti barn, væri gift og þyrfti að borga leikskólapláss (sem ég fékk sko að gera á sínum tíma) þá erum við að tala um ca 30 þúsund á mánuði bara í það dæmi.

Fyrir manneskju sem er með 130 þúsund útborgað kæmi þetta niður á sama stað.

Mér fannt ömurlegt að þurfa að koma krökkunum á leikskóla, Jóhönnu rúmlega eins árs og Doddi var ekki nema átta mánaða þegar hann fór á leikskóla. Allt of lítill og ég hefði miklu frekar viljað vera heima með hann - og þau bæði - til tveggja ára aldurs - minnst.

Mér er alveg sama þótt femínistar gubbi á mig núna.. ég vildi óska að ég hefði efni á að hætta að vinna og sinna fjölskyldunni minni. Vera búin að þvo og sinna heimilinu þegar þau koma heim úr skólanum á daginn, hjálpa með heimalærdóminn án þess að vera á öðru hundraðinu að setja í þvottavél og elda mat.

Eyða tíma með þeim án þess að vera þreytt eða pirruð. Stressuð.

Og í dag er þetta raunhæfur valkostur, eins og hún bendir á og myndi leysa að hluta til það ófremdarástand sem er í leikskólamálum í dag.

Ég sé mömmu allt öðrum augum eftir að ég fór að hjálpa í þessari baráttu. Hún blómstrar, þetta er hennar "sjanra" þetta er það sem hún gerir vel og af heilindum.

Í fyrsta sinn á ævinni hefur hún mann sem stendur við bakið á henni eins og klettur og þau blómstra saman fyrir vikið.

Ég reyni að afsaka mig í huganum, þegar ég hugsa um hvað ég var leiðinleg við hana þegar ég var yngri og gerði nákvæmlega ekkert til að hvetja hana áfram, með því að ég er dóttir hennar og sem slík er ég eigingjörn og tilætlunarsöm, vil hafa aðgang að henni þegar mér hentar og eiga hana útaf fyrir mig.

Það er líklega engin afsökun.

Ég er reglulega stolt af mömmu minni og ég vona að ég geti orðið til þess að hjálpa henni sem mest í þessari kosningabaráttu. Ég efast ekki um að hún er rétta manneskjan í starfið.


| anna | 16:02 |
comments

Ég er hjartanlega sammála því að það ætti að vera raunhæfur valkostur fyrir foreldra að vera heima hjá börnunum sínum fyrstu árin. Ég man að Davíð Oddsson kom fram með þessa hugmynd þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík (einhvernveginn varð nú ekkert meira úr því) og þótt ég hafi almenna óbeit á sjálfstæðisflokknum hef ég æ síðan skimað eftir einmitt þessu kosningaloforði. Spái mömmu þinnum miklum og víðtækum vinsældum ef hún kemur þessu í gegn.

Nr. 1 | posted by: Eva | 7.01.2006 | 10:28:17 | [+] |

HAAAAAA!!!???

Er Jóhanna Thorst. MAMMA ÞÍN?

vaaá.

ég þekki hana sko colgate

bið að heilsa henni...

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 9.01.2006 | 1:18:20 | [+] |

Já hún er sko mamma mín og ég skal skila þessu til hennar! wave

Nr. 3 | posted by: anna | 9.01.2006 | 1:28:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web