www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Plastbúr
Mánudagur, 23. janúar 2006

Ég er búin að vera að leka niður úr þreytu í allan dag, lagði mig þegar ég kom heim.. ca korter, svo eldaði ég og fór að vinna í næsta verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur.

Er bara komin með helv flott gameplan þó ég segi sjálf frá. Kemur svo í ljós hvort viðskiptavinurinn samþykkir það.

Ég er svo þakklát þegar ég fæ viðskiptavini sem vilja ekki fá teljara á síðurnar og ekki grafík sem hreyfist. Sparar mér alveg rosalega mikið af fortölum.

Albert, Albert, Albert, Albert, Albert.

Búin að finna geðveika peysu á Albert. Ég er búin að finna svo margt flott á Albert en ég þarf að fá álit á plastbúrum. Hvernig týpu á ég að kaupa mér? M.ö.o. hvað er best?


| anna | 22:18 |
comments

Teljara og animation? Ertu að búa til síður fyrir einhverja Selfyssinga? what

Nr. 1 | posted by: Kalli | 23.01.2006 | 22:23:10 | [+] |

Nei, ég er einmitt ekki að því - og ég er svo þakklát fyrir það. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 23.01.2006 | 22:51:51 | [+] |

Er ... taggið ekki bara það sem þarf?

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 24.01.2006 | 2:39:23 | [+] |

hér að ofan átti að standa blink ... /blink (með hornklofum) en anna.is er sennilega búin að bannfæra þá ágætu skipun

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 24.01.2006 | 2:40:31 | [+] |

Þá hefur Önnu tekist hið ómögulega: sannfæra mig um ágæti ritskoðunar!

Nr. 5 | posted by: Kalli | 24.01.2006 | 3:43:05 | [+] |

Af hverju ekki teljara?
Ég er nefninlega í teljarakrísu með parisardaman.com síðuna mína. Finnst eins og ég eigi að hafa teljara á henni en finnst teljarar samt eitthvað lummó eða truflandi og ég veit ekki hvað ég á að gera. Af hverju EKKI teljara?

Nr. 6 | posted by: parisardaman | 24.01.2006 | 9:59:59 | [+] |

Já og Alan.. hehe.. ekkert blink á anna.is. Blink er rugl, RUGL segi ég! drunk

Nr. 7 | posted by: anna | 24.01.2006 | 12:46:16 | [+] |

Ég hef saknað blinksins lengi og fór að rannsaka þessa æpandi fjarveru þess í framhaldi af póstinum í gær. Og viti menn: Microsoft hefur tekið blink stuðninginn út úr IE!! Alltaf þurfa þeir að hugsa fyrir mann þessir gaurar í Redmond.

Nr. 8 | posted by: AlanHudson | 24.01.2006 | 15:12:03 | [+] |

æ.. ekki vera fúll þótt ég hugsi fyrir fólk smá.. ég get ekkert að þessu gert. Heitir meðvirkni. toungue

Microsoft hafa hinsvegar engar rétt á því að haga sér svona, þeir eru fyrirtæki!

Nr. 9 | posted by: anna | 24.01.2006 | 15:13:26 | [+] |

Kærar þakkir fyrir svarið.
Auðvitað er ég að tala um http://www.parisardaman.com sem er fyrirtækið mitt. Og auðvitað er ég að spá í hvort ég geti séð hvort fólk kemur inn og heldur áfram lengra, hvert það fer þá og hvort það staldrar lengi við.
En svo líður mér reyndar bara hreinlega ágætlega með síðuna svona aleina og ótrakkaða svo kannski er það bara lausnin. Hætti a.m.k. að hugsa um þetta núna í bili. Takk takk.

Nr. 10 | posted by: parisardaman | 24.01.2006 | 15:36:17 | [+] |

Ég tók náttúrlega ekki einu sinni eftir því að þetta er pæling fyrir parisardaman.com - ég tek svo vel eftir alltaf, fyrirgefðu þetta.

Ég myndi ekki fá mér teljara á hana, gerir hana unprofessional (að mínu mati). Tracker er allt annað mál.

Mikið af góðum upplýsingum á síðunni þinni um París, mig hefur alltaf dreymt um að fara í rómantíska ferð þangað en ekki enn fundið manninn sem mig langar að fara með. Reikna nú reyndar ekki með því að finna hann svo líklega mun ég plata Hörpu og sleppa rómansinum.

Gott að sjá hvernig þú setur upp síðuna þína, fyrir mig.. vantar fyrirmyndir varðandi kynningu á mér og þessháttar. Ég er alltaf "á leiðinni" að setja upp heimasíðu fyrir heimasíðugerðina mína en gef mér aldrei tíma í það. Er þessi síða ekki að skila þér ágætis bisness?

Nr. 11 | posted by: anna | 24.01.2006 | 15:49:37 | [+] |

Og París er sko fín borg að heimsækja með vinkonu sinni. Það eru ekkert allir standandi niðri á Signubökkum í keleríi, líka fullt annað og skemmtilegt að gera.

Nr. 12 | posted by: parisardaman | 25.01.2006 | 16:25:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web