Sunnudagur, 22. janúar 2006
Ég svaf til klukkan tvö. Tengdamamma fyrrverandi kom heim með Dodda stuttu síðar og þegar hún kom í íbúðina og sá allt draslið sagði hún "jesús", þegar hún sá mig sagði hún "JESÚS".
Já. Ég leit út fyrir að vera nýkomin úr styrjöld - og íbúðin líka.. því þótt börnin hafi verið hjá pabba sínum komu þau heim á hverjum degi og voru hér þangað til pabbi þeirra sótti þau um kvöldið.
Þegar ég kom heim seint á kvöldin hafði bæst í draslið.. og ég hafði ekki orku í að gera nokkurn skapaðann hlut í því.
Þetta breyttist í dag. Nú er íbúðin orðin hrein og ég er búin að þvo fimm þvottavélar. Allt að komast í rétt horf. Ég náði meira að segja að fara í bíó í kvöld líka. Eva vinkona mín bauð mér á frönsku myndina Caché í Háskólabíó. Góð mynd. Mjög góð mynd.
Ég sit hér og hlusta á þvottavélina mala (er ekki byrjuð að vinda sko) og uppþvottavélin er á fullu líka.
Hvað það er dásamlegt að hafa hreint í kringum sig.
Þegar frumburðurinn var að tannbursta sig áðan sagði ég "nú er ég orðin mamma aftur". "Eins gott", var svarið.
Nú ætla ég að taka uppúr ferðatöskunni og kíkja á hvað ég keypti þarna útí London!