www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Milan
Þriðjudagur, 03. janúar 2006

Í hádeginu fór ég að hitta Siggu. Fengum okkur rjómalagaða aspassúpu í barbie skálum. Sem hentaði mér reyndar mjög vel, á stundum erfitt með að klára matinn minn þegar ég fer út í hádeginu. Núna síðast á thorvaldsen þegar ég fékk mér einmitt súpu. Núðlusúpu. Fannst hún nú bara nokkuð góð. Það var ekki hægt að sjá það á disknum þegar ég var búin. Meira en helmingurinn eftir.

Af hverju er ekki hægt að panta.. ekki barnaskammt.. heldur "ráðlagður dagsskammtur skv. manneldisráði" skammt? Af hverju miðast matarskammtar í dag oft við offitusjúklinga? Er þetta kannski spurningin um hvort kom á undan? Offitusjúklingurinn eða alltof stóri matarskammturinn á veitingahúsum?

Glatað að vera bara með klukkutíma í mat. Ég varð náttúrlega að rjúka rétt fyrir eitt en hefði verið til í að fá mér KAFFI hehe því það var svo gaman að tala við Siggu. Enda sagði ég við hana að mér fyndist við ættum ekkert að hittast aftur í hádeginu. Ættum miklu frekar að hittast þegar við höfum tímann fyrir okkur og hún var alveg sammála. Ég þarf náttúrlega að hætta að vinna..

Sem verður reyndar ekki keisið hjá mér á næstu dögum. Ég kem ekki til með að koma upp og anda fyrr en 21. janúar. Þá mun ég slappa verulega af áður en ég legst í næstu vinnutörn til að fjármagna Albert.

Mér finnst ekki nóg að hann heiti Albert. Ég vil að hann heiti eitthvða meira líka. Albert Breki? HEI! EN BREKI DREKI ALBERT?

Já hvað eru komnir margir dagar án Lifur núna? Heyrðist ekki síðast í honum á 2. í jólum?

Þar hafiði það. Þetta er tíminn sem má líða án Lifur þangað til mig langar í hund aftur.

Magnað.

Breki Dreki Briem Albert Leðurblaka.

Kallaður.... Tralli.


| anna | 14:55 |
comments

Já, þessi klukkutími var alltof fljótur að líða! Næst verður valinn annar tími dags... eða skrópað í vinnuna eftir hádegi evil Ég hef aldrei séð eins stóra matarskammta og í Bandaríkjunum... hver er skammtur fyrir gráðuga fjögurra manna fjölskyldu. Hrædd um að við höfum apað eftir þeim að stækka skammtana undanfarin ár. Súpuskammturinn í hádeginu var líka alveg passlegur fyrir mig. Svo bauð hún okkur meira smile

Nr. 1 | posted by: Sigga | 3.01.2006 | 16:34:20 | [+] |

Skammtarnir í bandaríkjunum eru nú bara absúrd. Langt frá því að vera normal. Fór einu sinni á taco bell (þetta var '87) og þegar ég fékk matinn varð ég eiginlega hálf hrædd og fór næstum að gráta.

Þegar ég var búin að borða mig pakksadda var ekki SÉNS að sjá að búið væri að snerta matinn!!

Ekkert smá skerí rugl. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 3.01.2006 | 16:46:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web