Laugardagur, 28. janúar 2006
Í dag fór ég að heimsækja hvolpana sem fólkið sem ég er að vinna fyrir á.

Þetta er Simbi. Hann er minnstur og ég held að hann sé mesta dúlla sem ég hef á ævinni séð og alveg silkimjúkur.

Hulk er lang stærstur og ofboðslega fríður.

Sýnist þetta vera King Kong og Simbi.

Þeir voru að leika sér á lærunum á mér. Staður sem margir karlmenn virðast vilja kanna betur.

Hulk og Simbi

Nú næ ég þér!






Þeir hafa svo mikla nagþörf og fengu að taka hana út á buxunum mínum og sokknum.

..og fingrinum á mér.

-tvisvar!
ÉG ER VEIK! MIG LANGAR SVO Í HUND!
--
Anna: "oh Harpa.. oh sjáðu þessa mynd? Finnst þér hann ekki mikil dúlla OH SJÁÐU ÞESSA! Þeir voru svo miklar dúllur, og svo mjúkir, finnst þér þeir ekki sætir?"
stutt þögn
Harpa: "Ég var nú alin upp í sveit og finnst ekkert merkilegt að sjá myndir af dýrum"
Anna: "passaðu þig á að kafna ekki úr áhuga Harpa mín"
Harpa: "jájá, þetta var svona í sveitinni. Þeir voru bara hafðir úti"
--
Við erum svo góðar saman við Harpa að það er nú ekkert venjulegt.