www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lifur - EKKI HÆTTUR!
Fimmtudagur, 26. janúar 2006

Það eina sem ég get borðað án þess að kasta upp.. er harðfiskur.

Ég hef meira að segja of dýran smekk þegar kemur að uppköstum!

Þetta er ridiculous!

Lifur lífs míns hefur ekki yfirgefið mig! Hann stimplaði sig inn í nótt og aftur í kvöld. Ég var sofandi í bæði skiptin. Ég lýg engu þegar ég segi að ég var farin að örvænta og líklega varð ég veik af sorg.. sem reyndist óþarfi enda er ég öll að braggast eftir þetta innlit Lifrarinnar minnar.

ÉG SAKNA ÞÍN SVO MIKIÐ LIFUR! FARÐU AÐ DRÍFA ÞIG AÐ VINNA ÞETTA STRÍÐ SVO ÞÚ GETIR KOMIÐ HEIM Í FJARBÚÐ MEÐ MÉR! ÞETTA ER ALLT OF MIKIÐ ÁLAG Á FJARBÚÐINA MEÐ MEÐ ÞIG ERLENDIS!

Lifur er alveg ótrúlegur. Alveg sama þótt hann láti sig hverfa öðru hvoru, hann kemur alltaf til baka á hárréttum augnarblikum. Ég held að hann sé ofurlifur. Ég held reyndar ekkert um það, ég veit hann er það.

Má samt passa mig á því þegar ég hef ekkert drukkið í langan tíma né borðað að bera þykkt lag af varasalva á varirnar á mér og bíða í minnst tíu mínútur áður en ég les það sem lifur skrifar. Líf mitt er nefnilega EYMD og VOLÆÐI án hans, mér stekkur ekki bros þegar hann er ekki hér! Ég stóla á að hann fái MIKLA sektarkennd þegar hann sér hvað þessi fjarvera hans fer illa með mig. ÉG KANN EKKERT AÐ BÚA EIN LIFUR! Get ekkert án þín verið, ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ!

Það segir nú meira en ÞÚSUND ORÐ AÐ ÉG SÉ AÐ DANSA LAMBADA MEÐ MARGEIRI! EÐA HVAÐ FINNST ÞÉR?

Mér finnst skrítið hvað karlmenn sýna því lítinn skilning að ég sé í fjarbúð. Ég hef sagt þremur mönnum sem vildu bjóða mér á stefnumót að því miður væri ég í farsælli fjarbúð. Ég hef komist að því að mönnum þykir það alment ekki merkilegt samband sem ekki er staðfest með hring..

- hint Lifur, HINT!

MÚHOHOHOHOHOHOHO

Annars á ég nú hring sem ég gæti sett upp, tvo meira að segja!

Ég á gamlan giftingarhring sem ég notaði í mörg ár og trúlofunarhring frá náskyldum ættingja. Mér finnst bara hálf lame að nota þá og er jafnvel að spá í að láta bræða þá saman í einn risa stórann, sem færi ekki framhjá nokkrum einasta manni þegar hann er á fingrinum á mér.

Því það virkar. Að ganga með hring. Þetta er man repellant (repellant = a substance used to repel insects) svona dags daglega þótt þetta verði aumingjasuga ef maður er á djamminu. Fyrri reynsla mín frá því ég var gift sagði mér að hringur á djamminu dregur að sér menn sem langar að stunda "frjálsar ástir" - og er skítsama um hvort viðfangsefnin, eða þeir sjálfir, eru gift eða ekki. Þeir mega hoppa uppí rassgatið á sér. Ég er auk þess aldrei á djamminu svo ég er laus við þessa galant einstaklinga.

Já. Best ég geri þetta. Bræði saman tvö mistök svo úr verði eitt stórt svakalegt success! Mínus og mínus gerir plús, rétt? Hringur myndi hjálpa til við að staðfesta fjarbúð okkar Lifur fyrir guði en samt aðallega öðrum mönnum. Karlmenn eru nefnilega svo skrítnir að þeir skilja ekki hvernig kona getur verið hamingjusöm með að eiga hund og vera í fjarbúð með lifur.

Þetta er náttúrlega vangefið lið.

Ég get ekki séð að ég sé að missa af nokkrum sköpuðum hlut. Á meðan ég hef Lifur er karlmannssamskiptaþörf minni fullnægt. Fullkomlega.

Sumir hafa bara persónutöfra sem eru engin takmörk sett. Aðrir eru svo lausir við perónuleika að þeir missa allan sjarma um leið og þeir fara úr fókus - og það er ekki að gera sig þegar maður notar gleraugu..

Helvítið hann Margeir er farinn að vaða inn á mitt svið tónlistarsendinga svo ég verð að gera tvennt. Fela klósettmottuna til að refsa honum grimmilega og minna Lifur á staðreynd sem aðrir karlmenn sem ég hef lagt lag mitt við geta staðfest (þó þeim sé auðvitað meinilla við það)..

því..

whatever you want
whatever you need
anything you want done baby
i'll do it naturally

'cause i'm every woman

it's all in me

it's all in me


| anna | 22:42 |
comments

kannski sendi ég thér hringorm sem thú getur klaedst eins og minnk til ad hrekja í burtu vidbjódslega, slefandi, óverduga bidla.
You like?

Nr. 1 | posted by: lifur | 28.01.2006 | 17:58:16 | [+] |

Oh Lifur.. LIFUR! Frá því ég vann í fiski sem unglinur hef ég alltaf átt mér draum um RISASTÓRANN HRINGORM sem ég gæti haft um hálsinn eins og kyrkislöngu!

HVERNIG GASTU VITAÐ ÞETTA?

Karlmenn eru svo miklir kettlingar, yrðu pottþétt hræddir þótt hann væri bara lítill og í hárinu á mér...

Nr. 2 | posted by: anna | 28.01.2006 | 22:41:35 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web