Laugardagur, 28. janúar 2006
-sagði Andri þegar ég skaut þriðju kúlunni niður áður en ég dúndraði svörtu í vasann.
Nei ég er ekki hustler. Langt því frá.
Á hverju ári er starfsmönnum og viðskiptavinum OK boðið í "diskó bowling" uppí keiluhöll. Í ár var mér boðið. Ég þekki nefnilega frábærann linux mann í réttu þrepi í hierarchy-inu sem gat smellt fingri og töfrað mig á nafnalistann eftirsótta.
Ég var ekkert ferlega vel upplögð, nýskriðin uppúr veikindum og af því ég svaf svo mikið síðustu daga ætlaði ég aldrei að geta sofnað á fimmtudagskvöldið. Held ég hafi fest svefn rétt um klukkan fimm og vaknaði hálf átta. Ég var samt ótrúlega hress í vinnunni þrátt fyrir allt.
Var ekki viss um að ég myndi endast lengi auk þess sökka ég feitt í keilu. Það var hinsvegar búið að sannfæra mig um að fleiri myndu sökka feitt svo það væri í góðu lagi. Kynjahlutföllin þarna voru sirkabát 300 karlmenn og fimmtán konur.
Mikið djöfull er gaman að spila þythokkí! Og ég sökka bara ekkert rosalega feitt í því! Vann allanvega 3 af fimm leikjum sem ég spilaði. Kannski vegna þess að ég límdi límmiðann með nafninu mínu þvert yfir brjóstin á mér. Ég byrjaði á að líma hann á jakkann en þar sást hann illa fyrir kraganum og þegar ég fór úr jakkanum límdi ég miðann á bolinn sem ég var í. Menn horfa hvort sem er alltaf fyrst á brjóstin á mér, alveg upplagt að þeir nái í það minnsta nafninu mínu í leiðinni.

Verst að límið á þessu dóti var svo lélegt að miðinn var alltaf að losna frá en þetta voru svo elskulegir drengir, hvert sem ég snéri mér voru menn boðnir og búnir að þrýsta honum aftur á réttan stað. Ég var samt ekkert að þiggja aðstoðina.
Við vorum fimm í liði í keilunni og það var alveg óborganlegt að fylgjast með E kasta kúlunni. Ég held ég sleppi því að reyna að lýsa þessu. Ég kem aldrei til með að ná mómentinu. Maðurinn er ótrúlegur og með mjög sérstakann stíl. Skemmtilegt því í dag sá ég strip hjá wulffmorgenthaler og hló uppátt í vinnunni. Hvernig átti ég að vita að þetta yrði live - nema bara í keilu - í gærkvöldi?

E fór á kostum í allt kvöld - eins og venjulega.
Ég stóð við mitt og sökkaði feitt - þó ekki feitast. Ég kenni að sjálfsögðu diskóinu um því ég get ekki sleppt því að dilla mér smá við svona eðaltónlist og það var ekki að gera sig í köstunum. Auk þess kom sérlegur ljósmyndari hátíðarinnar, tók sér stöðu á næstu braut og tók myndir af mér kasta. Það var ekki alveg að gera góða hluti fyrir einbeitinguna. Ég var svo upptekin af því að muna eftir að draga inn magann og brosa ljósmyndabrosinu..

hehehe yeah.
Eftir diskókeiluna fórum við inní matsal og fengum okkur bjór og mat. Við vorum fjögur að spjalla þegar maður sem ég hef aldrei séð áður settist í sætið við hliðiná mér. Ca fimm mínútum eftir að hann settist vék hann sér að mér og sagði "af hverju ertu ekki að tala við mig? Ég er hundrað sinnum áhugaverðari en allir mennirnir hérna inni."
Þessi lína var byrjunin á einni mögnuðustu pikköppsenu sem ég hef upplifað lengi. Ég er eiginlega ennþá að ná utanum þetta.
Vantar ekki sjálfstraustið. Því miður fyrir hann fannst mér hann nákvæmlega ekkert áhugaverður og sérstaklega ekki eftir þessa yfirlýsingu. Ég virti hann fyrir mér í örstutta stund og sagði, "Þú ert giftur. Það má vel vera að þú sért áhugaverður en ég hef ekki áhuga".
Hann glennti upp augun. "Giftur? Ég er ekki giftur." Nú, sagði ég, af hverju ertu þá með hring? "Er ég með hring?, sagði hann og leit á hægri höndina á sér. "ah.. já ég er bara í sambúð sko". Ég horfði á hann með sama svip og ég nota á Dodda þegar ég veit að hann er að reyna að pull a fast one on me. "nei ókey ég er giftur, sagði hann - (var samt búinn að fjarlæga hringinn) en ég er miklu áhugaverðari en allir þessir gæjar hérna. Myndir þú vilja.. "ná lendingu" í kvöld með flottum manni eins og mér?"
[Vá! Are you fucking kidding me?]
Ákvað að spila mig stærra egó en hann: "Við skulum hafa eitt á hreinu. Ef ég hefði áhuga á að sofa hjá þér væri ekki um neina lendingu að ræða, ég myndi einfaldlega taka þig. Ég hef bara ekki áhuga á þér né giftum mönnum almennt svo við höfum ekkert um að tala."
Þetta var nóg til að þagga niður í honum í smá stund en hann var ekki hættur.
Í korter reyndi hann ákaft að sannfæra mig um sitt eigið ágæti. Hann er maður sem veit hvað hann vill og þegar hann sá mig þá varð hann að fá mig. Mér fannst þetta alveg dásamlegt. Maðurinn sagði orðrétt við mig að ég myndi vinna meira en ég myndi tapa.. á því að sofa hjá honum!
HVAÐ ER AÐ?
Maður spyr sig.
Held að Andri hafi haft áhyggjur af mér en ég er stór stelpa. Been arround the block a few times. Ég hef dílað við svona menn áður sem halda að með því að bjóða framstæða hluta líkamans í uppréttri stöðu til þjónustu komi allar konur innan fimm kílómetra radíus til með að tæta sig úr nærbuxunum, leggjast á gólfið og glenna fæturnar eins vel í sundur og þær geta.
Hann var aðeins að misskilja stöðuna.
Þessi maður.. er klárlega.. ekki fyrir mig.
Ég er náttúrlega soldið öm því ég lék mér að því að slútta þessu ekki strax. Ég var orðin forvitin að sjá hversu langt hann myndi ganga. Fyrir mér var þetta orðin vettvangsferð í siðblindu karlmanna og ég skemmti mér konunglega. Þessi maður réttlætir svo fullkomlega þá ákvörðun mína að fara í hundana að það er eiginlega ekki fyndið. Hann tilkynnti mér að ég væri allt of myndarleg til að vera með svona nördagæjum, ég ætti að vera með honum, það kæmi lang best út fyrir mig.
Athugið, fyrir mig.
Karlmenn þreytast bókstaflega ekki á að hugsa um mína velferð.
Hann hélt áfram að selja sig sem valkost kvöldsins. Ég væri flott, hann væri flottur og við ættum að gera eitthvað úr því. Ég sagði honum að ég væri einfaldlega ekki þarna til að hössla, hefði ekki áhuga og svo minnti ég hann aftur á þessa örlitlu staðreynd.. að hann er giftur. Þá kannaðist hann ekkert við það lengur - enda hringurinn farinn - kom af fjöllum og horfði svo á mig sakleysisaugum eins og fermingarstúlka með hvítar chiffon slaufur í síðum fléttunum. Ég missti mig og fór að hlæja. Spurði hvort hann hafi hringt í eiginkonuna og fengið shotgun skilnað. Þá varð hann foj, veiddi hringinn uppúr vasanum og setti hann á fingurinn.
æææ.. hefur bráðin aðeins betra minni en gullfiskur?
En leiðinlegt
Andri settist við borðið hjá okkur. Þá tók við alveg dásamleg sena. Fyrst varð hösslerinn hræddur um að Andri væri kærastinn minn og ók sér í sætinu af stressi. Þegar hann var búinn að fá á hreint að svo væri ekki átti að sanna fyrir mér hvað hann væri mikill karlmaður og hann fór að ræða launamál við Andra. Bera saman tölur.
HVERJUM ER EKKI SAMA UM HVAÐ ÞESSI MAÐUR HEFUR Í LAUN? EKKERT OKKAR KEMUR TIL MEÐ AÐ FÁ AUKAKORT Á KREDITKORTINU HANS!
Hvað er það við karlmenn sem fær þá til að halda að ef þeir kunna að nota typpið á sér og þéna peninga.. að þeir séu gjörsamlega ómótstæðilegir og þurfi ekki að hafa neitt annað við sig en það. How authentically boring, jesús kristur hvað ég er leið á þessari helvítis steríótýpu. Skilja menn ekki að þeir hafa svo margt annað miklu áhugaverðara til brunns að bera eins og t.d. persónuleika! EF ÞEIR GÆTU NÚ BARA NOTAÐ HANN! Ég efast ekki um að þessi maður hafi fullt going for him. Af hverju stólar hann þá á þessa tvo hluti til að bera sig uppi? Er þetta minnimáttarkennd? Og gagnvart hverju þá? Karlmanninum sem situr við hliðiná viðkomandi? My god! Er hann kannski með stærra typpi?
NEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEIII!
Það er augljóst að ég er ennþá gangandi lúsera-segull. Hvernig er hægt að vera svona?? Ég á náttúrlega að hafa opinbert leyfi frá tryggingarstofnun til að leggja í stæði fyrir fatlaða!
Á endanum bað Andri þennan mann að láta okkur í friði. Laug að honum að hann væri búinn að vera að hössla mig allt kvöldið og gifti maðurinn hélt heim til konu og barna.
Við enduðum kvöldið á að taka nokkra leiki í pool og það var þá sem strákarnir urðu hræddir við mig og héldu að ég væri alvöru hustler því ég rúllaði þeim báðum upp í fyrstu umferð. Tapaði fyrir Andra í þeirri seinni en klikkaði illilega á að velja vasa fyrir þá svörtu í hinum leiknum. Annars hefði ég unnið hann líka.
Ég á nefnilega mín móment þegar kemur að pool og mikið rosalega var þetta skemmtilegt kvöld.
Takk Rikki, þú ert bestur! Frábært að hitta þig aftur Andri! Endurtökum þetta vonandi að ári og þá mun ég gjörsamlega rúllllllla ykkur upp!
MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO