www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
ég þori varla að skrifa þetta..
Þriðjudagur, 31. janúar 2006

..og ég er að halda niðrí mér andanum... því ég var að tala við "pabba" hans Alberts og hann sagði mér að hann gæti eiginlega lofað mér að ég fái Albert.

Pabba hans Alberts líkar nefnilega vel við mig (í síma) og ég hugsa að ef honum finnst ég ekki ófétisleg þegar hann hittir mig þá fái ég Albert.

OG ÞÁ FÆ ÉG ALBERT ÞVÍ ÉG ER EKKI ÓFÉTISLEG, nema við gifta karlmenn sem eru að reyna við mig - OG ÞAÐ ER EKKERT AÐ MARKA.

Má það alveg.

Ég er voða lélegt óféti. Vil fólki almennt vel og reyni að gera vel við þá sem mér þykir vænt um. Fyrst ég hef ekki fundið karlmann sem kærir sig um að gera vel við mig til baka.. finnst mér ég eiga alveg skilið að fá einn Albert sem ég get verið góð við.

Mér líkar líka vel við pabba hans Alberts og ég get ekki beðið eftir að sjá alla hundana hans.

Ég get hreinlega ekki beðið. Ég er svo spennt að sjá hvort þeim líki eins vel við mig fiðrildahvolpunum sem ég hitti um helgina. Ég sat á gólfinu og þeir komu og kúrðu sig upp við mig og léku á lærunum á mér og bitu í buxurnar mínar og sokkana og mér fannst það æðislegt og ég vona svo heitt að Albert kunni vel við mig.

Ég fæ að sjá hann klukkan eitt á mánudaginn að öllu óbreyttu og á eftir er ég að fara í dýrabúðir AÐ VERSLA!

Ég er svo spennt. ÞETTA ER SVO GAMAN!

Vá.. þetta er ekkert smá gaman.

Ég er með fiðrildi í maganum - og hund á heilanum.

Það er æðislegt.


| anna | 10:07 |
comments

vona að allt gangi upp hjá þér í hundastandinu smile

Nr. 1 | posted by: baun | 31.01.2006 | 10:28:47 | [+] |

oh takk! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 31.01.2006 | 10:38:05 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web