Ég er búin.
Fimmtudagur, 05. janúar 2006
Klukkan ekki nema rétt rúmlega sex.
Þetta er náttúrlega bilun.
Ég er búin að drekka svo mikið kók til að halda mér vakandi... að ég efast um að ég geti sofnað. Þó ég sé að leka niður. En mér tókst að gera það sem ég ætlaði mér.
Lítur samt út fyrir að ég þurfi að vaka svona aftur í kvöld.
Í dag gerðist svolítið sem kemur þessari kleppsvinnu ekkert við. Kannski.. bara kannski, er ég búin að finna Albert!
Ef þetta er hann, þá er hann á fósturstiginu og fer rétt bráðum að koma í heiminn. Kannski kom hann í heiminn í kvöld!
Úff..
Ég er með fiðrildi í maganum og bráðum.. verð ég kannski með fiðrildi í maganum og Albert í fanginu!
Ég er eiginlega hálf feimin úr spenningi. Þori varla að láta mig hlakka svona mikið til.
Mig langar svo mikið að eignast hann.
Fór á fund, var það í dag? Já ég held það. Sjís hvað ég er orðin ringluð. Allavega.. hann gaf mér svo mikið compliment þessi maður, vá hvað ég var hissa og ánægð.
og fyndið.. þeir aðilar sem þekkja mig og við höfum leitað til með verkefni þeir vilja ekki peninga í staðinn.. heldur heimasíðu - sem ég bý til. Ef fer sem horfir þarf þarf kosningasjóðurinn að moka í mig peningum fyrir heimasíðugerð og ef ég tek hina með - sem þekkja mig ekki - hefur skapast biðlisti og ég verð fullbókuð fram að jólum!
Mjög gott.
Lítur út fyrir að ég geti léttilega haft þrjá til fjóra Alberta á fjárhagsáætlun anna.is group fyrir árið 2006. En ég fæ mér samt bara einn. Það er auðvitað bara til einn Albert - og svo á ég stórglæsilegt úrval af skuldum sem ég get borgað inná þegar ég eignast peninga sem ég þarf ekki að nota.
Er reyndar búin að ákveða að helmingurinn af öllum tekjum sem ég hef útúr þessu moonlighting dæmi mínu mun fara í skuldir. Hvað ætli ég flýti mikið fyrir uppgreiðsluferlinu þannig? Verður spennandi að sjá..
Hinn helmingurinn fer í munað eins og föt og kannski t.d. þvottavél sem kann ekki að hoppa og öskra á mig og actually ÞVÆR FÖT SEM ERU SETT Í HANA. Shit hvað það væri mikill lúxus. Aldrei að kaupa ódýra þvottavél. NEVER AGAIN! Hugi var hérna um daginn og heyrði þegar hún stökk af stað. Í framhaldinu fórum við að tala um hryllingsmyndir. Það var ekki tilviljun. Hugi hefur ekkert geta sofið síðan þetta gerðist og er farin að sjúga puttann aftur, eitthvað sem hann var alveg orðin laus við!
Ég vona heitt og innilega að hann fatti ekki að ég er ábyrg fyrir öllu tilfinningatjóni sem þvottavélin mín veldur öðrum. Þessvegna þvæ ég aldrei þvott þegar það eru gestir.
Ég vona að ég sé ekki orðin svo örmagna af þreytu að ég sé hætt ða vera dómbær á hvað er gott og vhað er vont.
Ég held að þetta sé gott sem ég er búin að berja saman í nótt. Veit að það er ca milljón sinnum betra en hitt, enda var myndin með því ljót, og ég var dugleg að segja öllum það sem nenntu að hlusta á mig. Eins og t.d. manninum í dag.. sem var alveg sammála mér og sagði krúsjal atriði að fara til ljósmyndara.
Ókey... ég hef oft séð MIKLU BETRI MYNDIR frá ljósmyndara en þessar.. en það er smá mér að kenna því ég var ekki á staðnum (því hann hafði ekki rænu á að laga jakkann þannig að hún hefur KRYPPU á helmingnum á myndunum - ljóta ruglið) og auk þess hef ég grun um að þessi maður sé fjörgamall og hálfgerður hirð-ljósmyndari og þá má ekki segja stakt orð.. enda má alveg moða úr eþssu.. en ég er steinhætt að vinna með ljótar myndir. Þá hafna ég frekar verkefnum en að vinna með svoleiðis aftur. Og alveg eins og ég mun þekkja Albert um leið og ég sé hann, og berjast fyrir því að fá nákvæmlega hann.. þá þekki ég það sem virkar og ég held að það sé nákvæmlega þetta.
En núna heyri ég í gömlu köllunum sem eru að fara í sund svo ég er farin að sofa!