Nr. 2 | posted by: anna |
2.01.2006 | 12:59:28 | [+] |
Ég týndi syni mínum niðri í Austurstræti þegar hann var þriggja ára. Sólskinsdagur og fullt af fólki í bænum. Fann hann eftir nærri hálftíma panik þar sem hann stóð sallarólegur inni í búð, virti fyrir sér tyggjósjálfsala og skildi ekkert í þessum látum í mömmu sinni, þar sem hann hafði allan tímann vitað mætavel hvar hann var staddur.