Mánudagur, 09. janúar 2006
Albert er ekki enn fæddur, en ég heyrði í eiganda hans í dag og þetta er alveg að bresta á.
Ég er svo spennt. Vona að allt gangi vel. Vona það svo sannarlega.
Kosningabaráttan heldur áfram. Vakti til átta í morgun og vaknaði klukkan eitt í dag (gangi mér vel að vakna fyrir klukkan níu á morgun) og hélt áfram að vinna. Hringja í menn til að láta gera þetta og hitt og græjaði aðra hluti sjálf.
Dagurinn á morgun er fullbókaður - tvisvar.
Nú er ég að fara að sofa. - Eða reyna það. Ég er ekkert þreytt en á sama tíma útkeyrð.
Endaði daginn á að heyra í Hörpu og plana ferðina. Ég get ekki beðið, mikið djöfull held ég að verði gaman hjá okkur. Mælir einhver með leikhússýningu?
Get ekki hætt að hugsa um Albert..