Mánudagur, 16. janúar 2006
Kannski var það Albert sem kom í heiminn á meðan ég var í London. Ég veit það ekki ennþá, en ég veit að það komu tveir "strákar" og ein "stelpa".
Talaði við eigandann í örstutta stund áðan, hann er að vinna en ég má hringja annað kvöld til að fá nánari fréttir af gotinu.
Ég hlakka ekkert smávegis til, kannski er Albert bara svona pínulítill núna!

Í dag hitti ég hana Betu sem kom á kosninga- skrifstofuna til okkar, einn fallegasta hund sem ég hef á ævinni augum litið. Hún er blanda af chihuahua og chin. Alveg svakalega vel heppnuð blanda.
Þar sem ég er orðin nörri dauðans, með myndavél fasta við beltið - því ég þarf alltaf að vera tilbúin að taka mynd af frambjóðandanum ef eitthvað gerist, eins og ef hún fær sér samloku eða þarf að taka bensín..
..var ég með myndavél á mér í dag og gat fest Betu á pixla, þó ég hafi ekki náð alveg nógu góðum myndum því hún var pínu feimin þarna inni.



Það verður soldið gaman fyrir mig þegar frá líður að lesa hvernig ég fór smátt og smátt í hundana.
Því það er nákvæmlega það sem er að gerast. Ég fékk hreinlega SÓTT þegar Beta kom í heimsókn í dag. Mamma dæsti og stundi þungann og sagði að nú kæmi ekkert af viti frá mér það sem eftir lifði dagsins.
Ekki rétt. Ég er búin að gera alveg fullt af viti, en ég er búin að hafa hugann við Albert allan tímann..