Þriðjudagur, 06. desember 2005
Ég fann villuna, en hún er komin af ebay. Líklega náði engin minimum dæminu þar.
Allavega. Hér er söluyfirlitið en áður en þú lætur setja þetta á raðgreiðslur langar mig að benda þér á að skv. visa-blaðinu sem ég fékk í vinnuna í gær þá er hægt að fá visa lán á hagstæðum kjörum (visa er ekki að borga mér krónu og ég nota mastercard) hjá þeim núna. Tékkitt, kannski er það betra en rað.
Ég vil samt ítreka að mér finnst húsið geðveikt að utan en jafn óhugnarlega ljótt að innan. Út með allt veggfóður, innréttingar og ég ætla rétt að vona að fyrri eigandi taki þetta húsgagna rusl með sér, annars getum við reyndar notað þetta í eldavið. Þ.e. allt sem er ekki úr FORMÆKA! Þetta handriði og gegnheila viðargólfið má kannski vera, en bara kannski. Sjáum hvað mér finnst um það þegar ég er búin á blæðingum.
Það er ekki ljós á seríunni þegar þetta er skrifað.