www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Two sides on all mugs
Þriðjudagur, 13. desember 2005

stigvel.jpg

Mér finnst þau æðislega falleg.

Hlið a:

Í hádeginu hélt ég af stað í kringluna. Í kringlunni hitti ég skuggalega konu við gosbrunninn sem afhenti mér stígvélin svo lítið bar á. Hendurnar skulfu örlítið þegar ég tók við þeim og unaðsleg leðurlykt fyllti vit mín. Mig langaði að tæta mig úr stígvélunum sem ég var í þarna útá miðju gólfi til að máta.. en sá börn og gamalmenni út um allt, svo ég stillti mig.

Á leiðinni heim geymdi ég stígvélin í framsætinu við hliðiná mér og strauk þeim varlega á meðan ég beið á rauðu ljósi.

Þegar ég kom heim varð ég fegin því frumburðurinn var heima, og ég þurfti á tilfinningalegum stuðningi að halda sem aldrei fyrr og ég hreinlega þorði ekki að máta stígvélin því mér fannst þau of falleg og vildi ekki "ekki" passa í þau!

Ákvað að máta buxurnar sem ég keypti líka og var búin að steingleyma. Ég mældi mig út og suður fyrir buxurnar og fann mína stærð (8) í málatöflu svo þetta átti ekki að klikka, eða hvað?

Við skulum líta á sönnunargagn a.

buxur.jpg

Annaðhvort eru þessi númer út í hött eða buxurnar rangt merktar. Þessar buxur eru ekkert einu númeri eða tveimur of stórar. En kannski var ég bara að misskilja málatöflurnar.. örlítið.

Það væri mér reyndar líkt.

Ekki var þetta nú til að stappa í mann stálinu og ég gekk um gólf til að undirbúa mig undir áfallið sem ég yrði fyrir þegar stígvélin myndu reynast of stór eða of lítil. Spurði mig hvað ég hafi eiginlega verið að pæla? Kaupa skó í gegnum netið? Var ég að drekka þegar mér datt þetta í hug?

Ljóti vitleysingurinn...

Ég var farin að svitna, komin með gríðarlegann hjartslátt og fiðrildi í magann. Frumburðurinn hvatti mig áfram: "svona mamma! þú getur það! einn fót í einu!"

Ég tók stígvélið fyrir hægri fótinn í hendurnar sem skulfu líkt og ég væri illa þjáð af parkinsons, en náði að grípa í rennilásinn og renna rólega niður þannig að mjúkt fóðrið kom í ljós.. "nei... ég.. það er of erfitt Jóhanna.. ég.. ég get þetta ekki, og með enga lifur, ég þoli ekki fleiri áföll í lífinu! Get ekki sett fótinn í þetta stígvél bara til að komast að því að alveg sama hverju ég verð ástfangin af þá klúðrast alltaf allt og ekkert virkar og ALLIR yfirgefa mig og og og.. " Hérna tók frumburðurinn hugreystandi utanum mig og sagði yfirvegaðri röddu: "Mamma. Eins og Lifur myndi orða það: Hættu nú með þessa dramasýki og mátaðu bara. Þetta er tímabundinn aðskilnaður, tímabundinn."

Margeir hneggjaði og ég bað frumburðinn að læsa hann aftur inní kústaskáp.

Ég lokaði augunum, hélt niðrí mér andanum, stakk hægri fótnum í stígvélið og beið eftir því að tærnar mættu fyrirstöðu áður en ég gat sett hælinn niður..

--

Hlið b:

Í hádeginu hélt ég af stað í kringluna. Í kringlunni fékk ég stígvélin afhent, stelpan sem hafði tekið þau heim fyrir mig bað mig afsökunnar á því að hafa ekki verið búin að hringja í mig fyrr, ég sagði henni að vera ekki að pæla í því, það skipti engu máli sem er alveg satt. Það er ekki eins og ég hafi þurft nauðsynlega á þessum stígvélum að halda til að vera í þeim á meðan ég set í þvottavél eða fer út með ruslið!

hehe

Á leiðinni heim velti ég því fyrir mér hvað væri fair að selja svona stígvél á, miðað við að ég borgaði sjö þúsund fyrir þau plús buxur. Ég var handviss um að stígvélin myndu ekki passa.

Ég trúi á Murphy.

Frumburðurinn var heima. Ég dramatiseraði smá með að ég væri að fara að máta stígvélin, sagðist vera svo fegin að hafa hana þarna mér til halds og trausts, því ég gæti þetta pottþétt ekki ein. Hún hló. Komumst að þeirri niðurstöðu að líklega borgaði sig að máta buxurnar fyrst.

Þegar ég var komin í þær spurði frumburðurinn hvort þetta væru nokkuð óléttubuxur og svo sprungum við úr hlátri. Það má vel vera en ég keypti þær ekki sem slíkar..

Ég er ekki að skálda, mig langaði í alvöru ekki að máta stígvélin til að komast að því að þau pössuðu ekki, því þegar ég gat skoðað þau svona up close and personal fannst mér þau helmingi flottari en á mynd og mig langar virkilega til að eiga þau. Ég sat á stól inní stofu og velti öðrum skónum á milli handanna þangað til ég hugsaði "æ fokk it", stakk fætinum ofaní og beið eftir því að tærnar mættu fyrirstöðu áður en ég gat sett hælinn niður..

..ekkert gerðist.

Því ólíkt buxunum eru þessi stígvél eins og sniðin á mig.

Þau passa algjörlega og alveg. Ég ljómaði, klæddi mig í hitt stígvélið og kíkti á mig í spegli með gallabuxurnar brettar upp að hnjám.

Coolness!

Svo spurði ég frumburðinn hvort ég yrði ekki eiginlega að birta mynd af mér í svörtu "spari" buxunum - sem ég keypti "aðeins við stærð" til að ég geti virkilega notið mín á jólahlaðborðunum.

Aha.. yeah.


| anna | 14:36 |
comments

aaahh, frábært colgate

akkuru keyptirðu eitt svart og eitt brúnt? cool Nýja trendið? laughing

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 13.12.2005 | 15:52:28 | [+] |

Ég var búin að sjá þennan brandara fyrir og langaði að sjá hvort einhver myndi gera sér mat úr honum wink

Ég pantaði mér svört. Langar í brún líka reyndar.. cool

Nr. 2 | posted by: anna | 13.12.2005 | 15:56:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web