www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tannlæknir/gras og sumarbúðir
Fimmtudagur, 15. desember 2005

Ég fór að versla í hádeginu á öðru hundraðinu. Nú á ég eftir að kaupa:

1 jólatré
rjóma fyrir sósuna
jarðaber
bláber
mjólk

-fyrir jólin.

Ég dreif mig heim með allt góssið, henti því í skápa og þegar ég ætlaði að hendast aftur í vinnuna fékk ég hjartastopp á stigaganginum í eins og tvær sekúntur þegar ég sá tannlækninn minn koma úr íbúðinni við stigann.

Ég vissi að þessi íbúð var til sölu. Ég vissi að það var einhver fluttur inn. Ég vissi ekki að það væri tannlæknirinn minn.

"Neih... býrð þú hér?", sagði hann eiginlega hlæjandi. Ég man ekki til þess að ég hafi komið upp orði og ég hef örugglega verið miklu meira confused á svipinn en á myndinni efst til vinstri, en hann lét það ekkert stoppa sig: "er ekki gott að búa hérna? Allt sem maður þarf í göngufæri." Það má vera að ég hafi sagt.. "jú", ég þori samt ekki að fullyrða það. "Varstu lengi að venjast því að búa ein? Djöfull er þetta skrítið", sagði hann og..







..wait for it...













..BLIKKAÐI MIG!


Tannlæknirinn minn BLIKKAÐI MIG og ég er ekki einu sinni að PLATA!

Hér hefði ég líklega verið úrskurðuð dauð ef ég hefði verið á skurðarborðinu því hjartað lagði hreinlega niður störf í nokkrar mínútur. Lungun líka.

HANN ER FRÁSKILINN OG BÝR Í BLOKKINNI MINNI! TANNLÆKNIRINN SEM MYNDI POTTÞÉTT VINNA "HERRA HEIMUR" FYRIR TANNLÆKNA Á HVERJU ÁRI! OG ÞETTA GERIST AKKÚRAT ÞEGAR ÉG ER NÝKOMIN Í FJARBÚÐ MEÐ LIFUR GENG MEÐ TVÍBURA, HEF TVÖ BÖRN, HUND, DVERG, HAMSTUR OG HORNKERLINGU Á MÍNU FRAMFÆRI OG ER AÐ REYNA AÐ LÆRA AÐ SPILA Á SEMBAL!

Lifur er náttúrlega miklu flottari en tannlæknirinn, en.. tannlæknirinn er á staðnum og það er Lifur ekki.

Hljóma ég eins og kaldryfjuð tík? Iss.. það er einmitt það sem heillaði Lifur in the first place. Hann myndi ekki vilja hafa mig neitt öðruvísi - á meðan ég tala bara svona og geri ekkert.

Ég hlýt að hafa gert einhvern andskotann af mér fyrst maðurinn í risinu plantar svona skuggalega myndarlegum manni þremur hurðum frá mér akkúrat þegar ég er nýorðin grasekkja.

Sem minnir mig á..

Margeir hefur lofað mér að hætta að reykja gras eftir ég benti honum á að þegar fólk talaði um að reykja gras.. væri það ekki að meina.. gras.

Hann er allt annar dvergur eftir þetta.

Í gærkvöldi var ég að koma uppúr baði þegar ég heyrði snökt úr kústaskápnum. Margeir lá á plastpokanum sínu og grét.

Greinilega fleiri en ég sem sakna Lifur.
Ég henti í hann piparköku og skipaði honum að hætta þessum helvítis látum.


Finnst fólki bara allt í lagi hvað ég (og Lifur) erum vond við Margeir? Hversu langt þarf ég að ganga áður mér verður hótað Amnesty og mannréttindardómst.. já.

Hann er náttúrlega dvergur.

Eru samt ekki einhver dýraverndunarsamtök sem eiga að passa uppá svona lagað? ha? Á ég bara að komast upp með að kvelja aumingja Margeir eins og mig lystir? Ég er t.d. að hugsa um að fara með hann í sumarbúðir um jólin. Keyra hann uppí Kaldársel og skilja hann þar eftir með einn pakka og litla bilaða ljósleiðarajólatréð mitt. Er það fallega gert? ha? Það er engin þar! Hvurslax eiginlega fólk les þessa síðu!!

[Ég er nýbyrjuð að selja boli á fimmþúsund kall og á þeim stendur "BJÖRGUM MARGEIRI" og "MARGEIRAR HAFA LÍKA TILFINNINGAR" og "MÖK".
Sendi í póstkröfu.]


| anna | 15:45 |
comments

Heyrðu... finnst þér ókei að vera að pæla í mönnum sem keyra Saab?

Annars myndi ég endilega vilja MÖK í póstkröfu.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 15.12.2005 | 16:58:56 | [+] |

Ég eyði ekki einni hugsun á menn nema þeir eigi Jagúar eða Porsche og helst tvo. Bentley sleppur.

Lifur á Porsche. Tannlæknirinn minn á bmw, en það er allt í lagi. Ekki eins og ég ætli að giftast honum.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 2 | posted by: anna | 15.12.2005 | 17:59:01 | [+] |

Guð hvað þú getur verið mikil dræsa Anna! melodramatic

Nr. 3 | posted by: Kalli | 15.12.2005 | 18:11:45 | [+] |

Point in fact unga dama: það var engin póstkrafa á 13. öldinni svo mér sýnist ég bara samlaga mig vel og hananú!

En annars kann ég bara vel að meta að fólk stjani við mig. Þið getið byrjað á uppvaskinu, takk.

Nr. 4 | posted by: Kalli | 15.12.2005 | 18:22:54 | [+] |

Þú ert að biðja um femínista árás, er það ekki?

Nr. 5 | posted by: anna | 15.12.2005 | 18:23:26 | [+] |

Æi, Anna, ég bjóst nú síst við að þú myndir reyna að drepa mig úr leiðindum.

Það endar með að ég verð að finna lifur og sannfæra hann um að koma aftur úr útlegð og í fjarbúð. Ég bara þoli þetta ekki!

Þá er bara spurning hvort ég eigi að fara af stað með nesti og nýja skó að leita eða hvort ég eigi að hefja landssöfnun. Hvernig hljómar „Lifur heim!“? Við gætum kannski fengið alla góðu tónlistarmennina sem er aldrei boðið að gera svona söfnunarlag til að gera eitt fyrir lifur. Og þá gott lag til tilbreytingar...

Nr. 6 | posted by: Kalli | 15.12.2005 | 18:28:43 | [+] |

Ég er ekki að kaupa þetta. Athugaðu, að feika heilt samband krefst ákveðinnar skuldbindingar..

Nr. 7 | posted by: anna | 15.12.2005 | 18:47:04 | [+] |

Æi... byrjar þú að sjá góðu hliðarnar á öllu. Ég er farinn að finna fleiri veggi til að mála skrattann á.

Nr. 8 | posted by: Kalli | 15.12.2005 | 18:49:02 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web