www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
svo óendanlega skrítið..
Föstudagur, 09. desember 2005

þetta líf.

Í morgun hef ég verið að hlusta. Vinna og hlusta.

Í hádeginu hélt átakið "Anna og útlitið" áfram, sem gengur út á það að ég fer á random skyndibitastað og treð mig út af óhollustu til að safna á mig spiki. Ég fékk nefnilega hlutverk í bíómynd þar sem ég á að vera 350 kg og ég er svona "method" leikari.

Serious og professional.

Í dag varð Pítan í Skipholti fyrir valinu.

Inga skammaði mig. Segir að hún safni spikinu mínu þrátt fyrir að það var ég sem bað um að pítusósu yrði bíað útum allt og þegar það væri komið of mikil af henni á pítuna, mætti freta einni gusu úr brúsanum í viðbót, bara til að vera viss.

Þetta er besta Píta sem ég hef á ævinni borðað, eða réttara sagt... pítusósa með grænmeti og brauði.

Á Pítunni hitti ég vinkonu mína sem ég hitti frekar sjaldan. Hún spurði mig hvað væri eiginlega að gerast á síðunni minni og hvort við Lifur gætum ekki bara talað saman á msn. Ég sagði.. nei, við Lifur getum ekki talað saman á msn, þar sem ég hef ekki hugmynd um hver Lifur er.

Rassgat að eiga ekki myndavélasíma, því svipurinn sem kom á hana var óborganlegur! Hún sagði að sig hefði ekki grunað annað en að þetta væri einhver sem ég þekkti!

Neibb. Það er ekki þannig.

Þegar ég kom aftur í vinnuna sá ég tvo tölvupósta frá umræddum.. Lifur. Lag í báðum. í fyrri póstinum er hann að senda mér lag, sem ég var að leita að í morgun.. til að senda honum! Lagið heitir "anna dansar" eða Ride On Time - Black Box. Óumdeilanleg klassík og þá fór ég að velta því fyrir mér hvort ég hafi kannski verið að plata vinkonu mína og hvort það geti verið.. að þó við Lifur þekkjumst ekki neitt, þá þekkjumst við samt?

and time won't take my love awaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaay!

you're such a - you're such a - you're such a - you're such a
hot temptation!

you just walk right in
walk'walk'walk right in

Hann sendi líka lagið "likafostudagur", sem er yndislega fallegt og svo sendi hann mér lag sem heitir "handa onnu", sem er ekki síður fallegt og svo sendi hann mér lag sem heitir "halft tungl" sem lúnatíkerinn í mér kunni að meta, því augljóslega verð ég bara hálft tungl þegar Lifur er farinn.

Hann lofaði samt að koma aftur og kaupa nammi handa mér í fríhöfninni.

(æ þú hefðir sagt já ef ég hefði beðið þig um það, er það ekki? Mér finnst m&m með hnetum hrikalega gott. Hef ekki þorað að smakka með hnetusmjöri því mér skilst að maður verði háður því.)

Ég er soldið döpur yfir að Lifur sé að fara. Hann hefur hjálpað mér að gleyma því sem hefur verið að plaga mig undanfarið, svolítið sem ég kem ekki til með að skrifa um hér.

Hann tók hinsvegar af mér loforð áðan, ég hef lofað að vera dugleg að skrifa um hvernig ég hef það svo þegar hann ryður sér leið í gegnum frumskóginn til að finna net–hús, þá geti hann lesið allt um hvað ég sé að gera. Líklega er Lifur leynilegur talsmaður grasrótar anna.is aðdáendaklúbbsins sem gerir sér grein fyrir að ég er ekki að segja nærri allt á síðunni og er að véla mig til að breyta því.

iss.. fell sko ekki fyrir svona bragði!

MÚHOHOHOHOHOHOHOHO

en Lifur hefur tryggt það að anna.is verður haldið úti í a.m.k. hálft ár í viðbót.

Takk Lifur. Takk fyrir að vera.. alveg nákvæmlega eins og þú ert.

I'll be seeing you,
Anna Laufey

ps. Laufeyjan var úr Margeiri. Hann er með orma og stalst til að klóra sér í rassinum í rúminu mínu. Ég komst að þessu þegar hann sendi mér bréf og játaði allt saman, fékk það í vinnuna rétt áðan.

Hann á ekki von á góðu í kvöld.

RIDE ON TIME!


| anna | 16:38 |
comments

she said you are the perfect stranger
she said baby let's keep it like this

Nr. 1 | posted by: Formaldehýð | 9.12.2005 | 20:50:41 | [+] |

Er einhver að elda lifur?

Nr. 2 | posted by: Kalli | 9.12.2005 | 22:48:32 | [+] |

Formaldehýð: verður að vera þannig. Þetta er forboðin lifur.

Kalli: Ég vil mína hráa.

Nr. 3 | posted by: anna | 10.12.2005 | 0:01:15 | [+] |

Ég vona bara að þú fáir bara ekki lifrarbólgu meðan á þessu fjarbúðarhléi stendur silent

Nr. 4 | posted by: Kalli | 10.12.2005 | 0:49:55 | [+] |

Eins og ég segi þá ertu með aðdáunarverðan (og pínku furðulegan (á góðan hátt (mjög góðan))) tónlistarsmekk...
Veit einhver hvort það sé hægt að leigja fólk (helst indverja) til að pakka fyrir sig?

hreindýrafahitas eða fashanaborgari?

Nr. 5 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 19:36:09 | [+] |

ferðu í fyrramálið?

hreindýrafahitas

Nr. 6 | posted by: anna | 11.12.2005 | 19:56:43 | [+] |

http://www.fis.is/default.asp?cat_id=171

Nr. 7 | posted by: anna | 11.12.2005 | 20:02:12 | [+] |

ég held að það sé skyrpa, en ég er samt ekki alveg viss. Kannski ertu svona hljóðviltur eins og ég, hefur þú skrifað "áhykjur" einhvertíma?

Ljóta ruglið á þessu fis liði, ég hringdi í larry og lét hann vita af þessu.

Nei, þetta þýðir ekki fararheill. Nákvæm þýðing skv. alþjóðlegu skyrpingarhandbókinni minni er: "Að skyrpa í húðlitaða innanklæðis veskið sitt merkir að viðkomandi eigi alls ekki að ferðast næsta hálfa árið, helst að grafa sig í fönn með Internettengingu."

Þetta ættu nú allir að vita. þorgrímur er að selja þessa bók á þúsundkall í kolaportinu, mæli með henni..

Nr. 8 | posted by: anna | 11.12.2005 | 20:32:50 | [+] |

Æ come on Lifur, ég var bara að plata. þorgrímur er að selja bókina "is there sex after marriage" og hún er bara á fimmhundruð kall.

Fall er fararheill. Ég vil að þú komir í heilu lagi til baka! Lofarðu mér því?

Nr. 9 | posted by: anna | 11.12.2005 | 21:06:08 | [+] |

Ég veit ekki með önnur innyfli sem tala við þig hér á síðunni, en þessi lifur lofar að koma aftur í heilu lagi!

Hver veit nema ég sé bara að fara að læra að hætta að reykja capri sígarettur hjá honum þorgrímur... djöfull elska ég þetta litla fólk þitt annars. mætti ég biðja um [halim] og [unni birnu], eða er það kannski pushing it?

Nr. 10 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 21:49:59 | [+] |

Vissirðu að þorgrímur er með netfangið skald@simnet.is... var það kannski leyndó...

Nr. 11 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 21:51:00 | [+] |

Vissir þú að ef þú slærð inn "halim al" í google og ferð í myndaleit þá færðu upp mynd af fola af síðunni www.straightegyptians.com.

Kannski er það bara ég.. en mér finnst það óborganlega fyndið.

Auðvitað er það ekki pushing it. Komdu með fleiri góðar uppástungur. Hemmi var nú t.d. algjört brill.

Nr. 12 | posted by: anna | 11.12.2005 | 21:54:05 | [+] |

Í hinum fullkomna heimi væri t.d. til mynd af litlum Halldóri Blöndal. Reynir Pétur er líka manneskja sem mig langar mjög oft til að myndgera í kommentum mínum...
Rétt'upp hönd sem keyrðu hringinn sama ár og Reynir Pétur og lentu í því að hann væri sífellt að taka fram úr!
Mamma, ég og margeir slepptum heilu sýslunum til þess að vera á undan honum en allt kom fyrir ekki og þegar við neyddumst til að stoppa til þess að næra okkur strunsaði hann fram úr okkur vinkandi með tennur út um allt andlit.
Guð minn góður, þessi maður gat labbað!
Mig sem minnti að ég hefði unnið úr þessari bræði.... hmmm best að setja höfuðið milli hnánna og reyna að anda reglulega...

Nr. 13 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 22:05:53 | [+] |

En Vigdísi? Hvernig getið þið skilið Vigdísi Finnboga útundan?

Nr. 14 | posted by: Kalli | 11.12.2005 | 22:07:05 | [+] |

Ég á svo sannarlega eftir að sakna þín.

Ég mun gera mitt besta í að finna mynd af Reyni Pétri. Hann er dásamlegur og á heima hjá dr phil og félögum.

Mér finnst það.

Nr. 15 | posted by: anna | 11.12.2005 | 22:09:10 | [+] |

Ég mun sakna þín líka. Kannski sem ég til þín litla jólaoríatoru og spila hana á munnhörpu og sendi þér á kassettu... kannski...

Nr. 16 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 22:12:25 | [+] |

þú átt allavega jólagjöf hjá mér.

Ég get svindlað og sýnt þér mynd af henni..

Nr. 17 | posted by: anna | 11.12.2005 | 22:14:59 | [+] |

JÁJÁJÁJÁJÁÁÁÁ!!!!
PLÍÍÍÍÍÍÍÍÍSSSS!!!
VIIIIIILTUUUUU!!
SETJA MYYYYYND!

Nr. 18 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 22:16:58 | [+] |

Hérna er jólagjöfin, ég var sem betur fer ekki búin að pakka henni inn.

Margeir spyr hvort hann megi leika með hana þangað til þú læknast af skuldbindingafóbíunni og vilt hætta í fjarbúð, giftast mér og eignast þrjú börn, einbýlishús, hund og tvær finkur.

Má hann það?

Nr. 19 | posted by: anna | 11.12.2005 | 22:22:18 | [+] |

STÓRKOSTLEGT!
Þetta passar fullkomlega í porsinn minn!
Margeir má ekki leika sér með þetta nema honum sé sama þó ég búi til sundhettur úr rasskinnunum á honum. ÞAÐ ER ÉG SEM Á ÞENNAN ELVIS... ÉG OG BARA ÉG!!!
takk fyrir skan!
Ég er með ofnæmi fyrir hundum og sennilega finkum líka... ekki ormum þó... við getum átt hreinræktaða gæluorma sem allur stigagangurinn mun kúgast af öfund yfir...

Nr. 20 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:11:47 | [+] |

þú ert svo rómantískur, mega það vera skröltormar? Oh já, ég vil að nágrannar mínir kúgist af öfund. ÉG VIL ÞAÐ!

Ég skal passa Elvis eins og sjáaldur augna minna þangað til þú kemur aftur.

Lofa skan.

Nr. 21 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:18:08 | [+] |

já skröltormar eru mjög fýsilegur kostur!
Höggormar finnst mér líka mjög töff... kannski getum við meira að segja eignast skógarhöggorm (sem væri þá væntanlega í köflóttri skyrtu og með alskegg hversdags.)
Svo getum við farið út að ganga með ormana okkar og öskrað "what's your fucking problem?" á gamalt fólk sem gefur okkur auga.

Nr. 22 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:23:30 | [+] |

JÁ! oh já. Ég verð með sólhlífina í ljósum kjól.

Mér finnst nú bara eðlilegt að öskra á fólk þegar það er að gefa okkur auga úr sér. Alveg sama á hvaða aldri það er. Viðbjóður.

Við ættum að hafa kyrkislöngu til að losa heiminn við svona pakk.

Nr. 23 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:27:36 | [+] |

hvar ætli mar fái miðgarðsorm?

Nr. 24 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:30:56 | [+] |

ef hann fæst ekki í europris getum við alltaf prufa ebay

Nr. 25 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:32:24 | [+] |

glass water dispensers bottled water dispensers manufacturer texas purified water dispensers what are some problems with water dispensers discount bottless water dispensers addi water cooler dispensers what are some problems with water dispensers texas purified water dispensers water dispensers australia water dispensers for the spa best water dispensers toronto what are some problems with water dispensers culligan water dispensers upscal water bottle dispensers water dispensers for the spa discount bottless water dispensers addi water cooler dispensers water dispensers for the spa upscal water bottle dispensers what are some problems with water dispensers bottled water dispensers manufacturer addi water cooler dispensers

Nr. 26 | posted by: bottled water dispensers manufacturer | 27.01.2006 | 5:23:26 | [+] |

Good site. Thankssmile
http://dimab3.tripod.com/buy-detox-online/ buy detox online

Nr. 27 | posted by: buy detox online | 18.02.2007 | 21:48:07 | [+] |

Good site. Thank yousmile
http://people.clarkson.edu/~duryeajr/comm442/proj/upload/term-life-insurance-no-medical-exam.html life insurance with no exam required

Nr. 28 | posted by: life insurance policy no exam | 2.03.2007 | 0:51:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web