Föstudagur, 16. desember 2005
Í geymslunni fann ég fullt af því sem fólk kallar rusl. Þetta var hér og þar og til þess að ruslið myndi ekki blandast við "ekki" ruslið náði ég mér í rúllu af svörtum ruslapokum til að geyma ruslið í.
Ég reif einn ruslapokann af rúllunni og fyllti hann smátt og smátt af rusli.
Þegar pokinn var orðin fullur þurfti ég að ná í annan poka. Það var þá sem ég áttaði mig á því að ég hafði pakkað ruslapokarúllunni niður í kassann sem var komin neðst og innst á bak við fjall af öðrum kössum.
Ég held.. að ég hafi gert þetta vegna þess að ég er snillingur.
Í dag er ég með fullan bíl af rusli og m.a. þennan eina ruslapoka þarna. Ég er hinsvegar með ruslapressufælni og kvíði að fara í sorpu.
Ástæðan fyrir þessu er sú að fyrir einhverju síðan sá ég frétt frá útlöndum um að lítill strákur hafi verið að leika sér í blaðagámi þegar það kom bíll að tæma og hann pressaði..
Grínlaust þá hefur mér verið illa við svona pressur síðan og finnst að þær ættu að vera búnar til úr gegnsæju efni. Hata að koma nálægt þessu.
Já og svo reyndi einn svona gámur að ÉTA KONU um daginn.
Skilst mér.
Lífshættulegt að henda rusli á okkar tímum.