www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Pollagalli
Miðvikudagur, 28. desember 2005

Ég er búin að skrifa tvö blogg.

Annað mun ég ekki birta undir neinum kringumstæðum en hitt var ég alvarlega að spá í að birta. Og það gætu verið svo stór mistök að það er langt frá því að vera fyndið.

Ég er búin að vera að hugsa að birta eitthvað í líkingu við það síðan 13. júlí s.l.

Ég var með fingurinn á "publish" þegar ég fékk póst í inboxið. Þetta er í þriðja skipti sem einhver sendir mér nafnlaust tölvupóst. Í þetta sinn er það "pollagalli".

Mér finnst áhugavert að þessi póstur varð til þess að ég ákvað að fresta birtingunni á blogginu og velti fyrir mér hvernig það kemur til með að hafa áhrif in the long run.

Hvað hefði gerst ef ég hefði ekki fengið þennan póst og smellt á "publish"? Og af hverju var nóg að fá þennan póst til að ég frestaði þessu?

Ég veit alveg af hverju. Það er vegna þess að þetta eru mistök. Enn ein mistökin in a long line og ég fokking veit það. Andskotinn sjálfur, af hverju langar mig þá innst inni að gera það?? Er ég haldin kvalarlosta?

Eitt sem ég hef komist að út frá því að blogga. Þó svo að ég segi aldrei neitt sem gæti þannig lagað komið neinum illa - á það ekki við um mig. Fólk les hitt og þetta út úr því sem ég skrifa og skilur það svona og hinsegin. Ég gæti vel trúað því að það geri mér svipað ógagn í einkalífinu að halda úti bloggi og gagn.

Samt veit ég það ekki alveg. Það virðist allavega vera riskí bisness að vera single kona að blogga. Ef karlmenn eru svona miklir fokking lúðar að þeir höndla ekki að kona skrifi fokking fiction á vefinn..

Í hin skiptin sem ég hef fengið nafnlausann póst var það skinny jim og ég man ekki hvað hinn hét enda orðið langt síðan ég losaði mig við hann. Tel Lifur ekki með því hann er ekki nafnlaus og við vorum komin í fjarbúð, farin að fjölga mannkyninu og komin með sameiginlegt forræði yfir dverg þegar hann fór að senda mér tölvupóst. Augljóslega allt annað dæmi.

Skinny Jim reyndi að halda uppi samræðum en ég gerði honum grein fyrir því að ég ætlaði ekki að eiga nein samskipti við hann fyrr en hann segði mér hver hann væri og gæti sýnt fram á það. Sem hann gerði þegar ég var búin að ignora allar sendingar frá honum í tvo daga.

Í póstinum frá pollagalla er aðeins ein spurning:

"hver er anna ???"

Ég sendi til baka: "hver er pollagalli?"

Ég þarf að fá concrete svar við spurningunni minni því svarið við spurningunni þinni er á allri síðunni minni, simaskra.is, þjóðskrá og whois uppflettingunni hjá ISNIC.

Vettvangurinn til að eiga við mig nafnlaus samskipti eru nákvæmlega hérna, ekki í tölvupósti.

Ég hef auk þess oft verið í betra skapi en akkúrat núna og þegar ég er í vondu skapi á ég til að vera helvítis tík.

Ég yrði ekki hissa þótt þetta vonda skap mitt yrði eitthvað viðvarandi næstu daga...

FOKKING KARLMENN ÞOLI ÞÁ EKKI!

Sem betur fer er Lifur líffæri!

Já.. úúúúúúúúúúúúúú... æ.. fokk itt ég ætla að come clean.

Lfur. Ég veit hver þú ert. Búin að vita það í rúma viku. Ég hef velt því fyrir mér hvort ég eigi að segja þér að ég veit það en er á sama tíma hrædd um að þú viljir ekki leika við mig lengur ef þú veist að ég veit hver þú ert.

Allavega. Ég veit það núna og einhverra FÁRÁNLEGRA hluta vegna finnst mér rétt að þú vitir af því. Þetta breytir nákvæmlega engu fyrir mig. Þú ert forboðna Lifur lífs míns og ég er Anna Laufey og ég vil vera það áfram. Nógu andskoti leiðinlegt að vera anna 24/7.

(Ánægjulegt að vita að ég hafði rétt fyrir mér. Vissi að þú værir myndarlegur snillingur, maður drauma minna og þessvegna meikar það fullkomið sense að við hittumst aldrei.)

Láttu nú ekki þetta smáatriði koma upp á milli okkar.

Þú getur ekki frekar án mín verið en ég þín.

Gerðu svo eitthvað til að koma mér úr þessu heiftúðuga skapi sem ég er í. Helvítið hann Margeir er að gera mig geðveika með ristavélina í baðkarinu, netið dettur út í tíma og ótíma, hárið á mér hefur aldrei verið eins liðað, kannski vegna þess að ÉG var í baði áðan þegar Margeir fór í mömmó með heimilistækin.

fFOOOOOOOOOOOOOKKKK ING HELVÍTIS ANDSKOTIiIIiiii"!

fávitar allstaðar að gera mér lífið leitt. Þetta er ekki svona andskoti flókið, getur ekki fokking verið það! AF HVERJU DREG ÉG AÐ MÉR MENN SEM ÞURFA VERULEGA Á HJÁLP FAGAÐILA AÐ HALDA? (þetta á ekki við um líffæri. Þau virðast hafa verulega therapjútic áhrif á mig og sálfræðingurinn minn er að hugsa um að útskrifa mig)

djöfull er ég fokk pirruð.. eða eins og celine myndi orða það:

AAAAAAAAAAAAAHAAAAAAAAAahAAAAAAAAaAAAAAAAAAA"!!!!!!!!!!!!


| anna | 0:02 |
comments

That's the spirit, let it out. Let it all out.

Nr. 1 | posted by: Maggi G | 28.12.2005 | 4:50:57 | [+] |

Anna mín,
ég held að það rétta í stöðunni væri að kaupa ógnarmagn af tvibökum, berja þær í spað með hnúum og hnefum og reyndar öllum þeim áhöldum sem þér dettur í hug. Fara svo að selja rasp.

Nr. 2 | posted by: Langi Sleði | 28.12.2005 | 13:19:02 | [+] |

Alltaf gott að fara út í rokið og öskra, nú eða lemja einhvern/eitthvað. Helst ekkert lifandi. wink

Nr. 3 | posted by: farfuglinn | 28.12.2005 | 23:22:32 | [+] |

Geturðu ekki notað þínar eigin galdradúkkur?

Nr. 4 | posted by: Kalli | 28.12.2005 | 23:38:11 | [+] |

Æ kalli come on. Hefurðu aldrei heyrt frasann: "never get high on your own supply" ?

Nr. 5 | posted by: anna | 28.12.2005 | 23:41:39 | [+] |

Ég hef heyrt margt en ég fer eftir fæstu.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 28.12.2005 | 23:46:23 | [+] |

Strákurinn er að reyna að siða þig. Mér líst vel á þann stutta.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 29.12.2005 | 4:34:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web