Ég er búin að laga til í geymslunni og ég slapp með brákaðan úlnið.
Ég er nokkuð sátt.
Nema.. í þessu áhlaupi tóku toy story leikföngin sig til og reyndu að gera mig geðveika. Þau voru innst/neðst í poka. Það eru takkar á þeim svo ef ég færði eitthvað efst, þá heyrðist í þeim.
Zurg stóð sig lang best. Það eru nefnilega til tveir svoleiðis og hann gjammaði á mig í steríói og skaut á allt sem hreyfðist.
A.m.k. hljómaði það þannig. Allir nágrannar mínir halda að ég fari í geymsluna á kvöldin til að leika mér með leikföng barnanna minna sem ég hef tekið frá þeim.
Spes.
Zurg var ekki sá eini, Buzz lightyear hjálpaði til.
Ég hef búið til stuttmynd sem lýsir lífsreynslu minni eitthvað.
Þessi mynd varir þó ekki í þrjá klukkutíma. Ég lagði á mig töluverða vinnu við að grafa þessi helvítis kvikindi upp, til að geta a) tekið þá upp á vídeó b) reynt að tortíma þeim.
| anna | 23:18 |
comments
SNyyyyyyyyyllldddddd
Nr. 1 | posted by: Maggi G |
16.12.2005 | 1:02:34 | [+] |
einmitt þegar maður hélt hann myndi hjóla í zurgana flaug hann bara (voða tignarlega! en samt!) í burtu! og skildi zurgana eftir til að ráða stjörnubrautinni
á hvað getur maður stólað í þessum heimi ef ekki buzz lightyear?