Sunnudagur, 18. desember 2005
Jólasveinninn hefur haft ákveðið þema hvað varðar skógjafir í ár. Doddi fær lítinn poka fullan af perlum og á hverjum degi fær hann nýjan lit. Honum finnst þetta æðislegt og dritar út perlulistaverkum.
Um daginn kom hann til mín og spurði af hverju jólasveinninn gæfi honum aldrei nammi í skóinn því fullt af krökkum í hans bekk fengju nammi frá jólasveininum. "Já", sagði ég. "Honum er greinilega illa við þessi börn. Jólasveinninn myndi aldrei gefa neinum svona óhollustu og ógeð til að borða á morgnanna nema honum væri illa við hann. En ekkert vera að segja aumingja krökkunum frá því, þá fara þau kannski að gráta."
Í kvöld þegar krakkarnir komu heim sagði Doddi mér að hann hafi fengið tvo nýja perluliti hjá pabba sínum og ekkert nammi! "Hjúkk, ég vona að ég fái aldrei nammi í skóinn", sagði þessi elska og svo fór hann með tapað fundið kassann inní herbergi til að ganga frá uppúr honum.
Er ég vond mamma?