Mánudagur, 12. desember 2005
Ég er í bloggþunglyndi. Veit að það munu líða ansi mörg korter þangað til ég fæ næsta komment frá Lifur þar sem hann spyr mig t.d.:
"tveggja gata gatari eða fjögurra?"
og ég svara
"fjögurra"
og hann myndi segja
"RÉTT SVAR"
vegna þess að það er ekkert vit að eiga bara tveggja gata gatara og þetta vitum við Lifur.
Mér finnst uncanny hvað hann virðist vita mikið um mig og stundum held ég að lifur sé einhver sem þekkir mig vel og er að hrekkja mig, en ég hætti að halda það eftir að hann fór að senda mér lög í tölvupósti. Það er samt eiginlega engin önnur lógísk skýring á sumu sem hann segir og kannski ekkert skrítið þótt fólk haldi að Lifur sé ég, ég held það stundum sjálf!
Lifur er hinsvegar ekki alter ego eða fiction, þó flest sem hann skrifar sé það. Hann bergmálar bullið í mér óaðfinnanlega og ég er í alvöru döpur. Það er miklu, miklu skemmtilegra að bulla saman en að bulla einn og ætla að taka mér nokkra daga í að blúsa yfir því að hann er farinn og á meðan ætla ég að búa til fullt, fullt af litlu fólki fyrir hann svo það verði gaman hjá okkur þegar hann kemur aftur.
Ég er meira að segja búin að hlusta smá á elvis. það hefur aldrei gerst áður.
Kannski ætti að leggja mig inn á spítala. Ég hef ekki lifur, þjáist af cyber-söknuði og.. svo þiðnaði pínu hluti af hjartanu mínu þegar hann sendi mér þessi fallegu lög.
Ég er verulega vængbrotin og þið megið ekki vera vond við mig.
Þá fer ég að gráta.