www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mig langar að vita
Mánudagur, 05. desember 2005

Hvernig myndir þú skilgreina orðið "hnakki"?


| anna | 10:36 |
comments

Tja, það fer alveg eftir því hvaða hnakka er verið að tala um..

Ef hnakkinn er áfastur einhverri mannsveskju, þá myndir ég segja svona c.a. frá banakringlu og aftur á höfuð þar sem vöðvafestingar hálsvöðva enda...

svona um það bil.

En ef það er svínahnakki, þá er það alveg ógeðslega ódýrt kjöt og varla í neitt nýtilegt nema eitthvað fátækragúllas..

Nr. 1 | posted by: Þór | 5.12.2005 | 11:03:59 | [+] |

Ég er að tala um svona hnakka sem "hnakkamellur" sækja í.

Nr. 2 | posted by: anna | 5.12.2005 | 11:07:38 | [+] |

Hnakki er sá hluti líkamans sem kúlan fer í gegnum á þér og margeiri... þegar ég hef tíma aflögu.

Nr. 3 | posted by: lifur | 5.12.2005 | 11:17:34 | [+] |

Æji.. láttu nú ekki svona, mátt ekkert skjóta mig í hnakkann með öll börnin okkar á leiðinni. Geturðu ekki séð í gegnum fingur þér með þetta smáatriði? Það er svo boring að fá aldrei.. og það er þér að kenna!

Nr. 4 | posted by: anna | 5.12.2005 | 11:30:38 | [+] |

já ég veit, en ég vil vita hvernig fólk skilgreinir þetta. Ég spyr því ég fæ svo margar mismunandi skilgreiningar hjá fólki.

Þetta er eiginlega orðið hobbí hjá mér - að spyrja að þessu.

Nr. 5 | posted by: anna | 5.12.2005 | 11:39:15 | [+] |

Stærðfræðileg skilgreining á alheimsfastanum "hnakki" skv. Niels Bohr-stofnuninni í Kaupmannahöfn:

Hnakki ? Hugi

Nr. 6 | posted by: Hugi | 5.12.2005 | 11:59:43 | [+] |

Spjallið ekki alveg að skilja óhnakkalegu stærðfræðitáknin mín.

hnakki != hugi

Nr. 7 | posted by: Hugi | 5.12.2005 | 12:01:17 | [+] |

Það eru líkur til að þú sért hnakki ef þú hefur einhverntímann:
Átt Buffalo skó
Aflitað á þér hárið
Verið með strípur í hárinu
Ert frá Selfossi
Gengur í þröngum t-bol eða hlýrabol án yfirhafnar í miklum kulda
Ert með træbal tattú
Finnst FM 957 alveg vera málið
Myndir fara á tónleika með Scooter
Bíllinn þinn er breyttur en ekki til að komast hraðar eða hafa betri aksturseiginleika
Ert súkkulaðibrúnn og ekki vegna útiveru

Því fleiri atriði, því fleiri stig. Þessi listi er ekki tæmandi.

Nr. 8 | posted by: Kalli | 5.12.2005 | 12:08:47 | [+] |

og ef þú keyrir niður laugaveginn (já eða reyndar frekar bílastæðið fyrir framan smáralindina) á breytta bílnum í hlýrabolnum um miðjan vetur með vindinn í aflitaða hárinu (ekki það að það myndi haggast eitthvað samt..) og gæsahúð á træbal tattúinu með fm957 í botni.. þá ertu alveg bókað hnakki..

Nr. 9 | posted by: vælan | 5.12.2005 | 12:49:40 | [+] |

Já einmitt. Ég hélt þetta. Hvernig þetta getur heillað konur er gjörsamlega beyond me.

Í morgun fékk ég samt skilgreiningu sem gerir mig að hnakka og ég er frekar ósátt við það. Í morgun var mér sagt að allir sem fíluðu diskó og 80's tónlist séu hnakkar. Stemmir það? Geta konur verið hnakkar? Eru þær þá hnakkamellur?

Ætli það séu til hnakkadömur?

Nr. 10 | posted by: anna | 5.12.2005 | 13:34:38 | [+] |

Ég held að sá sem sagði þetta við þig sé full(ur) af *censored*

Ég er nú ekki mikið hallur undir diskó þótt þar sé stöku gott lag en tónlist frá 9. áratugnum heillar mig oft. Það er EKKERT hnakkalegt við The Smiths, The Cure, Purrk Pillnikk og The Pixies. EKKERT! Það má kannski segja að það sé eitthvað hnakkalegt við Duran Duran en punk/post-punk rætur þeirra afsaka það.

Ég held að kvenkyns hnakki kallist beygla.

Nr. 11 | posted by: Kalli | 5.12.2005 | 13:44:04 | [+] |

Vá þetta er ekkert smá merkilegt. Þarna er heill þjóðflokkur fólks sem ég hafði ekki hugmynd um að væri til!

Myndi þetta kallast minnihlutahópur?

Nr. 12 | posted by: anna | 5.12.2005 | 13:50:59 | [+] |

Ég er að spá í að gera hnakka broskall.

Nr. 13 | posted by: anna | 5.12.2005 | 14:32:16 | [+] |

Hnakkamellur eru með aflitað hár, of mikið brúnkukrem og alltaf ógeðslega hissa á svipinn. Þær kaupa sér frekar ný brjóst en að ferðast og sjá heiminn. Sem útaffyrir sig...

Nr. 14 | posted by: DonPedro | 5.12.2005 | 21:24:12 | [+] |

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá unglingum sem kunna vel skilgreiningu á hnökkum... hlusta hnakkar helst á techno... ekki diskó. Að hlusta á diskó núna er meira svona Vintage og þess vegna smart cool

Nr. 15 | posted by: Sigga | 6.12.2005 | 17:05:00 | [+] |

ÉG ER SMART!!!! wave

Nr. 16 | posted by: anna | 6.12.2005 | 17:41:30 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web