www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lady in red
Fimmtudagur, 08. desember 2005

Þetta hefur gerst áður.

Tvisvar.

Ég hef búið á alveg óhugnarlega mörgum stöðum um ævina en í öll skiptin sem ég hef fengið send blóm af tilefnislausu hafa það verið rauðar rósir og í hvert sinn hafa þær verið sendar hingað, í þessa íbúð sem ég bý í núna.

Ég hef reyndar fengið blóm oftar en þrisvar. Það er hinsvegar tvennt ólíkt að fá blóm send heim eða afhent "in person". Ég held að það sé vegna þess að þegar maður er hissa og glaður þá fer maður stundum hjá sér.. en þegar það er engin til að sjá það.. leyfir maður því bara að.. vera. Lengur?

Ég veit það ekki...

Í fyrsta skiptið var ég sautján ára. Þá kom hingað upp stigann maður með stórann hvítann kassa með rauðum borða. Inní honum voru rauðar rósir og kasetta (já það er svona langt síðan ég var sautján) og á henni var lagið Lady In Red með Chris De Burgh (vinsæll söngvari á síðustu öld). Í kortinu stóð: "Þú í gær".

Þetta gerðist á laugardegi og ég komst aldrei að því hver sendi mér þessar rósir en ef þú ert að lesa máttu vera viss um að þú lést mig hugsa... mikið og án þess að fá nokkra niðurstöðu. Kynntir mig fyrir alveg nýrri tilfinningu, sem ég gleymi aldrei. Kenndir mér á "the element of surprise".

Næsta skipti sem ég fékk sendar rósir heim var fyrir rúmu ári síðan. Þær voru frá frá manni sem ég lét senda rósir til þegar ég var nítján ára. Það fylgdi kort með rósunum frá honum og þegar ég fékk þær.. ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvernig mér leið. Það er einfaldlega ekki hægt.

Þegar sendillinn gekk í áttina til mín áðan með þennan blómavönd, rifjaðist upp fyrir mér hvað þetta er frábær tilfinning. Einhver hafði fyrir því að eyða tíma og fyrirhöfn í að senda eitthvað til þín.. og bara til að gleðja þig. Sendillinn brosti líklega alveg jafn breitt og ég.

Sumt fólk segir að það séu fávitar sem gefi blóm, að það sé hallærislegt eða fáránlegt. Þetta fólk stærir sig oft af því að gleðja aðra aldrei á þennan hátt en gasprar um að það geri það öðruvísi.

Sem er sjaldnast raunin.

Ég er alls ekki að segja að mér finnist það skylda að senda fólki blóm í tíma og ótíma. Það sem ég er eiginlega að segja.. er.. að mér finnst að það eigi allir, allir skilið.. að upplifa hvernig tilfinning það er.. að fá alveg óvænt.. einn daginn.. send blóm frá einhverjum sem bara datt það í hug. Af því honum þykir vænt um þig.

Því það er alveg einstök tilfinning.

Ég veit núna frá hverjum þessi blóm eru og það er sem mig grunaði, Interflora kom við sögu því hann er ekki á landinu, hefur in fact aldrei hitt mig en hann þekkir mig. Hér. Mig langar að þakka þér sömuleiðis, fyrir að vera til og fyrir að senda mér svona falleg blóm og gefa mér tækifæri til að upplifa svona eftirvæntingu og gleði.

Mér þykir alveg óendanlega vænt um það.

Takk.

Lady In Red - Chris De Burgh


| anna | 21:12 |
comments

fallegt!

Nr. 1 | posted by: lifur | 9.12.2005 | 9:31:07 | [+] |

þessi færsla kom mér til að skæla

Nr. 2 | posted by: tótalí | 9.12.2005 | 15:15:11 | [+] |

sona sona smile

console

Nr. 3 | posted by: anna | 9.12.2005 | 16:53:05 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web