www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jólatiltekt í barnaherberginu
Sunnudagur, 11. desember 2005

doddi_tiltekt1.gif

Doddi með fyrstu dótakassana sem hann fékk til flokkunar í stofunni.

doddi_tiltekt2.gif

Þegar ég spurði hann hvort þetta væri orðið of mikið af dóti til að flokka:
Nauts! Get þetta með léttu!

laki.gif

Doddi: "Æ ég þoli ekki þessa bók!"
Anna og frumburðurinn í kór: "af hverju ekki?"
Doddi: "ég bara þoli hana ekki!"
Frumburðurinn: "Láka?"
Doddi: "já"
Anna: "af hverju þolirðu ekki þessa bók?"
Doddi: "af því hún er of hryllileg fyrir mig."

Mér finnst Doddi yndislegur.


| anna | 20:44 |
comments

Já. Það er fátt jafn fallegt og lítið barn með flokkunarþráhyggju og púkafælni!

Nr. 1 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 21:53:41 | [+] |

Neineinei. Það er ég sem þjáist af flokkunarþráhyggju. Hann þjáist af móðurást og gerir þetta til að þóknast mér.

Ef hann fengi að ráða þá myndi allt draslið vera í einni hrúgu á miðju gólfinu í herberginu hans.

Nr. 2 | posted by: anna | 11.12.2005 | 21:57:28 | [+] |

Mér finnst hans aðferð rökréttari.
Ég myndi pottþétt brotna saman ef einhver bæði mig um að flokka allt dótið mitt ofaní tröllanestisbox...

Nr. 3 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 22:15:26 | [+] |

Ég keypti þessar bækur þegar ég var sautján, svo ég myndi eiga þær þegar ég færi að eignast börn.

Nr. 4 | posted by: anna | 11.12.2005 | 22:57:04 | [+] |

Frábært!
Ég var ekki með á hreinu hvernig ég ætti að bera upp spurninguna um hvort börnin gætu virkað sem indverskir þrælar í framtíðinni... snilld!
Þarf kannski aldrei að pakka aftur!!!

Nr. 5 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:13:33 | [+] |

LOKSINS ERUM VIÐ Á SÖMU BLAÐSÍÐU!

Nema það er einn galli. Þegar þau verða átján fá þau eitthvað sem heitir sjálfræði og geta flutt úr geymslunni ef þau vilja ekki vera þar.

En við getum alltaf búið til fleiri, OG svo eru tvö ný á leiðinni!

Nr. 6 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:17:16 | [+] |

MÖGULEIKARNIR ERU ÓTÆMANDI!
Notum dverginn okkar sem blómastand og hinn tvíburinnn getur dregið mig á sleða í vinnuna!
Hvenær áttu aftur von á þér?
Bara spá í hvort ég þurfi að sjá um að taka upp úr töskunum upp á eigin spýtur í júní?

Nr. 7 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:25:51 | [+] |

sko.. ég er komin ca tvær vikur á leið svo líklega koma þau í nóvember.

Samt finn ég alveg spörk og heyri þegar þau rífast!

Það þarf að þjálfa þau í alveg fimm ár áður en þau fara að gera eitthvað gagn.

Nr. 8 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:30:32 | [+] |

Mér finnst lágmark að þau verði farin að stökkva í gegnum eldhringi í desember 2007!
Díll?

Nr. 9 | posted by: lifur | 11.12.2005 | 23:31:53 | [+] |

Það krefst töluverðrar vinnu og á meðan ég hef Margeir.. ég veit það ekki. Nema þú hafir einhverja aðkomu að því máli..

Nr. 10 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:34:05 | [+] |

Ég á húllahring sem ég nota til að þjálfa Margeir, það er steinolía sem mig vantar og eldspýtur!

Jú, 1805, árið sem Internetið kom til sögunnar, iPod gat spilað vídjó og um daginn þá fann enskur leirkerjakall upp aðferð við að búa til postulín þannig að það var miklu betra en venjulegt postulín og hann kallar það bone-china.

Þetta verður í sögubókum, held ég.

Nr. 11 | posted by: anna | 11.12.2005 | 23:46:14 | [+] |

Eftir umfangsmiklar rannsóknir hef ég komist að því að ég er á rangri hillu og ætla að beint í sveinsnám í bone-china þegar ég kem heim.
Mitt fyrsta verk verður sennilega blaðagrind, sem ég mun gefa þér Anna!

Nr. 12 | posted by: lifur | 12.12.2005 | 0:22:56 | [+] |

Lifur.. þú ert sem hugur manns. Mig vantar einmitt blaðagrind. Það er eiginlega það eina sem ég á ekki.

Nr. 13 | posted by: anna | 12.12.2005 | 11:17:40 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web