Fimmtudagur, 01. desember 2005
Um daginn var ég í kjörbúð Jóhannesar (bónus) þegar Doddi kallar allt í einu: "MAMMA! ÞÚ VERÐUR AÐ MUNA AÐ KAUPA HANDA OKKUR JÓLAGJAFIR!"
Ég horfði á barnið, svona hálf hissa, og spurði: "eh.. hvað hefur það komið oft fyrir að ég gleymi að kaupa handa ykkur jólagjafir?" Hann tók sér góðan tíma í að hugsa málið áður en hann svaraði: "aldrei".
Nei. Honum fannst bara nauðsynlegt að kalla þetta yfir alla búðina til að gefa í skyn að ég væri svona mamma sem henti pulsum í pott á aðfangadag, setti hass í pípu og segði "vó.. shit.. kids marr.. ég gleymdi að kaupa pakka, hahaha, vá hvað þetta er fyndið, wahahahaha"