Þriðjudagur, 27. desember 2005
Í dag (gær þar sem þetta er skrifað eftir miðnætti) var árlegt jólaboð Finsen slegtsins.
Ég tók Margeir með, aðallega vegna þess að Lifur hefur hótað að flytja.. einhvert annað.. og ég vil það ekkert... nógu erfitt að vita ekki hvar hann býr núna, svo ég tek Margeir með mér hvert sem ég fer. Vil allt fyrir Lifur gera á meðan hann þjáist þarna í Færeyjum. Ég þjáist líka, en það er nú bara vegna þess að ég er kona og það er skylda mín að þjást.
Sem er önnur saga.
Ég sakna Lifur.
Margir í ættinni hafa verið á lóðaríi á þessu ári, ég sá mörg ný andlit og aðra sem ég hafði ekki séð mjög lengi - eins og Gumma frænda sem er búin að vera lokaður inni á Kvíabryggju í mörg herrans ár. Nei, kom svo ekki í ljós í haust, þegar geðlæknir sem stal mökk af peningum kom á Kvíabryggju, að Gummi er bara svona illa haldinn af tourette syndróm og það var þessvegna sem hann sló höndinni ítrekað í andlitið á fólki og kallaði það öllum þessum hryllilegu uppnefnum.
Hann Gummi myndi aldrei gera flugu mein, af ásetningi. Maður þarf bara að vera snöggur að beygja sig nálægt honum.
Margeir hefur tekið ástfóstri við græna klósettmottu sem hann kom með heim um daginn og heimtaði að fá að hafa hana yfir herðunum eins og minkaslá í jólaboðinu, "spari". Það var ekki nokkur einasta leið að tala hann ofanaf þessari helvítis vitleysu svo ég setti rauða slaufu í þessi strá á hausnum á honum til að beina athyglinni að einhverju öðru en þessari grænu, illa lyktandi, loðnu hörmung.
Er svona í alvöru selt í dag?
Eftir slagsmál, drykkjuskap og ítrekuð afskipti lögreglu í fyrri jólaboðum var brugðið á það ráð í ár að fá tvo lögreglumenn til að leita á fólki við innganginn. Margt skemmtilegt sem kom út úr því.
Nú vita t.d. allir að Gulla er flatbrjósta með klósettpappír í brjóstahaldaranum - og að hún geymir fjaðurhníf í hægra "brjóstinu". Eins gott að olufs þarna.. eineltis prógrammið er ekki í gangi í þessari fjölskyldu því við erum strax farin að plotta kvikindislegar aðgerðir til að stríða Gullu á þessu og hún á ekki von á góðu á næstu jólum. Hún og bróðir hans afa sem reyndist vera í skærbleikum sundbol innanundir jakkafötunum.
Hann er reyndar orðin svo forn að hann gæti mögulega verið orðin svona illa kalkaður. Sleppur líklega fyrir horn. Samt.. pínu skerí hvað þetta náði hátt upp...
Ég á þetta sem betur fer ekki á vídeó.
Allavega. Leit út fyrir að verða óhugnarlega leiðinlegt jólaboð. Framanaf. Það leitaði hinsvegar engin á Margeiri vegna þess að klósettmottan lyktar eins og klóak, sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég geymdi hann í skottinu á leiðinni í boðið. Nema hvað.. hann hafði smyglað innanásér flösku af landa sem hann stal úr náttborðsskúffuni minni og læddi henni í jólaölbolluna sem er alltaf í fínu kristals-bolluskálinni hennar ömmu.
Tveimur tímum seinna var fólk almennt komið á trúnaðinn, menn, konur og börn. Nema þeir sem voru í kókinu og ég er alltaf í kóki um jólin. Mjög áhugavert hvað börnin höfðu að segja um foreldrana á fimmta glasi. Ég á þetta allt á vídeó.
Gummi frændi hrinti Diddu niður stigann og kallaði hana *censored*. Hún rotaðist, annars gerðist ekkert markvert.. fyrr en komið var að því að borða frómars.
Ég hef sagt áður frá þessum frómars. Hann er legendary. Finnsen frómarsinn. Það er vitað um dauðsföll þar sem hann kemur við sögu, 365 eru að falast eftir að gera heimildarmynd um uppruna hans og eðli og ég bara veit að þessi frómars mun fara í sögubækurnar sem versti desert frá landnámi.
Það veit sem betur fer engin uppskriftina af þessu. Við erum öll að bíða eftir að konan sem býr þetta til fyrir fjölskylduna hrökkvi uppaf. Norninn er rúmlega hundrað ára og frá því ég man eftir mér hefur fólk hvíslað "kannski lýkur þessu næstu jól" og svo stingur það skeiðinni í þetta.. þetta..
Hef aldrei þolað þennan viðbjóð sem bragðast eins og karton þó áferðin sé meira eins og pappamassi. Mér finnt límfóðurslím samt töluvert betra á bragðið og tala af reynslu. Það er önnur saga... um það hvað pabbi var duglegur að nota eldhússkálar þegar hann var að dytta að hlutum heima. Mamma var ekki kát og þrisvar þurfti að dæla upp úr maganum á okkur krökkunum. Týndi bróðir minn drakk flotmúr, ég veggfóðurslím og litla systir drakk terpentínu. Við lærðum að borða aldrei neitt úr skálum heima og svo var okkur refsað fyrir að borða aldrei meðlæti!
Go figure..
Þegar frómarsinn var borin á borð gerðu börnin í fjölskyldunni uppreisn, stálu ömmu úr sætinu sínu og læstu hana útá svölum og kröfðust þess að þurfa ekki að borða frómarsinn. (Ég á þetta líka á vídeó.)
Langafi tilkynnti börnunum, og sveiflaði göngustafnum ógnandi í kringum sig, brjótandi styttur, glös og gleraugun hennar Möggu, að þau, fullorðna fólkið, myndu ekki láta kúga sig, sagðist hafa barist í þorskastríðinu (hvað er búið að vera stríð lengi þarna í færeyjum eiginlega?) og krafðist þess að þau myndu sleppa ömmu. Krakkarnir skildu ekki orð af því sem kallinn sagði því hann hikstar og höktir svo svakalega, hótuðu að fórna ömmu fyrir málstaðinn og henda henni niður af svölunum ef frómarsinn yrði ekki látinn hverfa af borðunum.
Þetta var orðið verulega spennandi fyrir okkur sem höfðum verið í kókinu, hinir voru flestir dauðir, nema uppreisnarseggirnir og langafi. Get svarið að maður fékk tár í augun þegar langafi lagði til atlögu með stafinn. það var í alvöru sætt. Hann er fótbrotinn. Datt um sjálfan sig. (held að Maggi mágur hafi náð þessu á vídeó)
Og amma lifði af. Fólkið í húsinu á móti hringdi í lögregluna. Tómt rugl. Víkingasveitin send á okkur, komu innum gluggana og amma dó næstum úr vosbúð og hræðslu. Hún er ennþá uppá geðdeild í áfallahjálp. Hún veit þó allavega við hverju hún á að búast af þessum barnabörnum sínum, auk þess eru runnar fyrir neðan þessar svalir og þetta er nú bara á þriðju hæð.
Ég var margbúin að segja móðursjúku liðinu að leyfa krökkunum að láta kerlinguna vaða, við myndum þá bara fara niður og sækja hana, no harm done, en nei. Það mátti ekki.
Aldrei hlustar neinn á mig. Við Margeir fórum áður en að jólasveinarnir komu en mér skilst að systir mömmu hafi verið búin að platað víkingasveitina til að leika þá í ár, þeir koma hvort sem er alltaf.
Sem er ágætt. Allir sem komnir eru af bleyjualdrinum eru hættir að kaupa þegar þær systurnar leika jólasveina. Þær eru aðeins of brjóstmiklar.
Reyndar held ég að jólasveinninn hafi svona.. man breasts.
Sem er einum of mjúkt fyrir mig. Man breasts og klósettmottur yfir herðarnar.
Það eru takmörk!
Over all bara helvíti vel heppnað jólaboð í ár myndi ég segja. Gitta frænka sagði mér yfir sjötta jólaölglasinu að henni fyndist alltaf svo skrítið að lesa um jólaboðin á síðunni minni því hún gæti svarið að boðið sem hún er í sé.. hreint allt annað boð!
Jájá Gitta mín, eeeeeeeeEEEEEEEEINMITT...
Held að það sé best að láta okkur sem erum í kókinu halda utanum atburðarásina..