www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
D.R.A.M.A.
Miðvikudagur, 07. desember 2005

Þegar ég var búin að gráta í klukkutíma í vinnunni með iShuffl-ið mitt í eyrunum að hlusta á lagið okkar, var ég send heim í frí vegna "skyndilegs tilfinningaskaða". Framkvæmdarstjórinn var að impróvæsa og fannst þetta lýsa ástandinu á mér lang best. Við vorum fyrst að spá í að hafa það bara "drama", en svo fannst okkur það of lame og völdum hitt. Kemur betur út á vottorði.

Þetta er allavega ekki dekurbarnaprinsessufyrirtíðaspennukast! Ég gáði!

thinktwice.jpg

það er ekki fallegt að fara svona frá mér og MJÖG ófrumlegt þar sem sambýlingar mínir to date hafa báðir gert nákvæmlega þetta sama. Þýðir ekkert að segja að það hafi verið vegna þess að ég sagði þeim að gera það, aukaatriði sem breytir ENGU um lokaniðurstöðuna.

Hvert ertu að fara svona merkilegt? Ha?

Hvaða staður á jörðinni hefur ekkert Internet? Ertu að fara í neðansjávarleiðangur? Internetið ER í sjónum!

Ég verð að fá einhverjar skýringar, ef ég á að geta hætt að gráta. Ef þú gefur mér ekki eitthvað haldbært þá neyðist ég til að tala við lögregluna og gefa skýrslu þar sem kemur fram að það varst ÞÚ sem ollir mér þessum hryllilega tilfinningaskaða og að það séu góðar líkur á að þú hafir hreinlega MYRT tilfinningaveruna mína!

Auk þess held ég að þú sért kona! Ef það er rétt hjá mér bætist "villir á sér kynhneigð" við kvörtunina! Ég veit að menn hafa setið inni fyrir minni sakir. Tími til kominn að kona geri það líka.

Já, Margeir er búinn að loka sig inná klósetti. Hann er HRÆDDUR því ég sagði honum að ef þú ferð frá mér í hálft ár verður þú að taka hann með þér..

Ef þú ert farin að dansa línudans aftur með þessum anorexíusjúka faranddansflokki.... Lifur, leitaðu þér hjálpar! Ef ekki fyrir sjálfan þig, þá fyrir mig og Margeir!


| anna | 10:37 |
comments

Hafðu beint samband við tryggingastofnun. Allar deildir.
Lyfjamáladeild, hjálpartækjamiðstöð, tapað fundið, og fólk á erlendri grund.

Eðli málsins samkvæmt, mun viðbúnaðarstigið í landinu vera hækkað úr jólaóróa í jólastress, og hugsanlega upp í panic.

Nr. 1 | posted by: Langi Sleði | 7.12.2005 | 11:08:02 | [+] |

guði sé lof fyrir þitt stórkostlega jafnaðargeð...
Ég, ólíkt hinum sambýlingunum, sagðist mundi KOMA AFTUR!
Annars eru fullt af stöðum í heiminum þar sem ekki er hlaupið að alnetsnotkun, og sá staður sem ég er að fara á (*hóst*litlahraun*hóst*) er einn af þeim!
HAGAÐU ÞÉR!

Nr. 2 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 11:44:56 | [+] |

Ó! Ég hef tekið gleði mína á ný.

Aðallega vegna þess að ég HRINGDI Á LITLAHRAUN OG ÞAÐ MÁ FARA Á INTERNETIÐ ÞAR!

Hálft ár? Varstu að stela landa?

Nr. 3 | posted by: anna | 7.12.2005 | 11:52:50 | [+] |

ok, ok ég er ekki að fara á hraunið...
Ég er að fara í nokkurs konar vísindaferð með íslenska dansflokknum... og það er bara ekki sjéns að margeir komist fyrir í rútunni.
En miðað við hvernig þú tekur þessu sýnist mér að þið munið bæði "teika" eða óla ykkur föst undir bílnum (eins og robert deniro í stórmyndinni víghöfði... af hverju hefur sú eltihrella-græja ekki verið markaðssett?).
Ef þú passar margeir þá skal ég reyna að komast á netið amk einu sinni í mánuði.
Díll?

Nr. 4 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 13:21:38 | [+] |

Kærar þakkir fyrir að blaðra viðskiptahugmyndinni minni um eltihrelligræjuna á netið. Fjögurra ára þróunarvinna farin í tojarann og einmitt þegar ég hef loksins fundið sjálfboðaliða sem ég bauð fram til að prófa græjuna á.

Nú get ég farið heim á eftir og sagt Margeiri að það sé öllum skítsama þótt bakið á honum sé á kvartmílubrautinni, þetta er ÓNÝTT.

Minnst einu sinni í mánuði, það er díll babe.

Nr. 5 | posted by: anna | 7.12.2005 | 14:11:52 | [+] |

SKÓFSTU AF MARGEIRI BAKIÐ???

þetta eru mjöööög alvarleg mistök anna! Á bakinu á margeiri húðflúruðum við mamma nefnilega kort af því hvar við grófum... ehm... vorlaukana okkar.

Nr. 6 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 14:37:00 | [+] |

SLAPPAÐU AF! Það er þarna útí kanti einhverstaðar, má alveg sækja það og strekkja! Get nú ekki betur séð en að það væri bara þægilegra fyrir þig og mömmu þína, bið að heilsa henni.

jesús KRISTUR! Væri nú MUNUR ef sumir hefðu MITT jafnaðargeð og ekki hræddir við að NOTA ÞAÐ!

Nr. 7 | posted by: anna | 7.12.2005 | 14:40:49 | [+] |

eins gott! Kannski getum við meira að segja búið til bongotrommu úr bakhúðinni á margeiri... fátt er svo með öllu illt...
Mamma biður að heilsa og segir þér jafnframt að RÓA ÞIG FOKKING NIÐUR!!!
Hvaðan ætli maður hafi þessa lambslund?

Nr. 8 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 14:51:35 | [+] |

ég hef fylgst með póstinum hennar Önnu og það hefur ekkert skilað sér frá þér

Nr. 9 | posted by: inga | 7.12.2005 | 14:54:38 | [+] |

Ég held að þú hafir þetta frá afa þínum. Datt hvorki né draup af þeim manni, nema í þetta eina skipti þegar hann slátraði öllum hænsnunum þegar hann missti af spaugstofunni '86.

Vá hvað hann varð fúll þá, mannstu? Þetta var árið sem þú fékkst ógeð á kjúklingaréttum. Finnst eins og þetta hafi gerst í gær..

Nr. 10 | posted by: anna | 7.12.2005 | 15:01:48 | [+] |

þetta var líka frábær þáttur sem hann missti af!
Ég er til dæmis að horfa á hann núna því ég lét flytja Spaugstofuna frá upphafi yfir á DVD, ein af topp 5 bestu fjárfestingum mínum frá upphafi!

Nr. 11 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 16:20:49 | [+] |

Útskýrðu fyrir mér af hverju ég hef aldrei fengið þetta lánað hjá þér? ha?

ÉG MISSI AAAAAAALDREI AF SPAUGSTOFUNNI!

Nr. 12 | posted by: anna | 7.12.2005 | 17:45:07 | [+] |

lifur heiti ég.... ehemm... ólafsson...
ma.. ma... ma.... mar bara skilurekkertíessu...

Best að bregða mér snöggvast afsíðis og þvo munninn með sápu.

Nr. 13 | posted by: lifur | 7.12.2005 | 18:03:53 | [+] |

þú rúlar

Nr. 14 | posted by: anna | 7.12.2005 | 18:39:30 | [+] |

engin sería?

Nr. 15 | posted by: siggimus | 7.12.2005 | 22:30:08 | [+] |

Ef nafnið skyldi ekki koma með, þá játa ég, þetta er ég. Þú skilur þetta að lokum smile

Nr. 16 | posted by: AlanHudson | 8.12.2005 | 8:08:11 | [+] |

Ert ÞÚ Lifur Alan!

Nr. 17 | posted by: anna | 8.12.2005 | 9:23:35 | [+] |

Nei, ég gæti í mesta lagi verð ristill. Ég á við eitthvað allt annað colgate

Nr. 18 | posted by: AlanHudson | 8.12.2005 | 17:26:40 | [+] |

þetta var MJÖG spes og bæði ég og tannlæknirinn fórum að hlæja - sem kom sér afar illa fyrir mig..

Nr. 19 | posted by: anna | 8.12.2005 | 17:53:03 | [+] |

Nei en reyndar er maðurinn í því að missa hluti úr höndunum þegar ég er í stólnum hjá honum. Man ekki hvort ég var búin að skrifa um það, síðast missti hann deyfinál og hún stakkst í gólfið rétt við stórutánna á honum.

Við fórum líka að hlæja þá.

Ég er in fact ekki að grínast.

Samt sem áður treysti ég þessum manni fullkomlega, enda fer hann nú ekki að vaða með tærnar uppí mig.

Nr. 20 | posted by: anna | 8.12.2005 | 18:06:11 | [+] |

Or does he...?

Kannski gerir þú hann bara óstyrkan?

Nr. 21 | posted by: Kalli | 8.12.2005 | 18:50:05 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web