Sunnudagur, 18. desember 2005
Klukkan rétt að verða hálf tvö og ég verð að fara að sofa. Maður er orðin gamall.
Þessi helgi virðist ætla að verða mjög.. productive. Í gær fór ég á fund eftir vinnu þar sem fundargestir fengu að borða, mjög gott, þurfti ég ekki að elda.
Klukkan rúmlega átta kom ég heim til mín og byrjaði að þrífa. Það hefur sýnst sig að alltaf þegar börnin fara til pabba síns hentar mjög vel að taka allt föstudagskvöldið í þrif, til að a) ég geti haft það huggulegt og b) undirbúa aðrar tvær vikur af barnaumgengni. Mér að kenna, ef ég væri duglegri að ala þau upp myndu þau líklega ganga betur um.
Klukkan hálf þrjú í gærnótt steig ég uppúr baði, skreið undir hreina sæng og sofnaði. Íbúðin var tandurhrein.
Vaknaði klukkan rúmlega níu í morgun og ákvað að sofa lengur - en ekki fyrr en ég var búin að setja í þvottavél, svo ég fór framúr, setti í þvottavél og skreið svo uppí rúm aftur. Nema.. af því ég hafði farið framúr var ég glaðvöknuð svo ég lá bara í rúminu í klukkutíma áður en ég fór á fætur og komst að því að ég var netsambandslaus.
Ég hringdi strax í 112, sagði þeim frá þessu og krafðist þess að einhver myndi gera eitthvað. Neinei, bara skellt á mig.
Þá fór ég að fikta í snúrunum sem eru hérna undir skúffueiningunni á skrifborðinu og netið datt inn og út, var samt aldrei lengur inni en 25 sek.
Ég nennti þessu ekki og ákvað að fara í bæinn að kaupa rafmagnsklær. Já.. því það varð fáviti á vegi mínum í Húsasmiðjunni útá granda sem sagði mér að "þessi" rekki innihéldi réttu klærnar. Ég tók eina upp og sá töluna sextán, spurði manninn hvort það væri rétt, að ég ætti að kaupa sextán - því mér fannst það grunsamlegt og tengdi þessa tölu við klær á þvottavélar, einhverra hluta vegna.
En ég er fáviti að trúa þessum fávita frekar en sjálfri mér því ég keypti 16 þvottavélaruslklónna og ef þessi maður er ekki búin að vera að drepast úr hiksta s.l. þrjá daga er nákvæmlega ekkert réttlæti í þessum heimi.
Fór í Húsasmiðjuna hjá Íkea. Þarna var klukkan hálf tólf. Í Húsasmiðjunni keypti ég alveg hrikalega flotta könnu fyrir jólaöl. Er ekkert smá ánægð með hana, búin að fara oft inní eldhús í dag og prufa að taka í handfangið og lyfta henni upp því þetta grip er alveg einstakt. Ég keypti klærnar sem mig vantaði, 10/250, fór heim og hélt áfram að reyna að tengjast netinu á milli þess sem ég hengdi upp úr þvottavélinni, setti í nýja vél og skipti um klær á millistykkjum. Ég er orðin algjör snillingur í að afhýða víra með dúkahníf.
Klukkan þrjú komst ég loksins á netið. Ég þurfti nauðsynlega að komast á netið, og ekki bara til að surfa á netinu, ég þurfti að vinna. Jæja, þetta entist í heilann hálftíma! Þá datt ég út aftur. Ég fékk nóg, fór niður í geymslu að skima eftir ströppum, veit að þær eiga að vera þarna í bílhlössum, fann að lokum ströppupoka, vopnuð honum og mikilli einbeitingu reif ég allar snúrur úr sambandi og tengdi ruslið aftur, strappaði snúrurnar þannig að það fer ekkert fyrir þessu. Þegar ég kveikti á tölvunni var netið komið - greinilega til að vera vegna þess að ég er búin að vera vinna síðan.. fimm í dag.
Nú er ég hinsvegar orðin þreytt og ætla að fara að sofa. Náði að þvo heilar sex vélar í dag og lítur út fyrir að ég geti klárað þetta dæmi á morgun.
Ekki vinnuna samt.. verð að þessu eitthvað inní í vikuna. Eða lengur.
Ég er gjörsamlega að sofna..