Þriðjudagur, 13. desember 2005
Ég er ekki búin að eiga iPod í sólarhring og er þegar byrjuð að blúsa yfir því að finna ekki svona axlahulstur fyrir hann. Ég missi handlegginn úr blóðleysi með þessu hulstri sem ég strappa á upphandlegginn á mér.
Er virkilega engin að framleiða svona byssuhulsturs-græju fyrir ipodda? Myndi vera miklu, miklu þægilegra.
Kannski er þetta ekki framleitt vegna þess að þá myndi lögreglan í bandaríkjunum myrða miklu, miklu fleiri sakleysingja sem ætluðu að slökka á ipoddinum til að heyra hvað þeir í lögreglunni væru að segja.
Mér finnst samt að það ætti að framleiða svona græju.
Fyrir vinalegri þjóðir.