Fimmtudagur, 08. desember 2005

Einhver, einhverstaðar í heiminum, sendi mann með eitthvað heim til mín í dag.
Ég komst að þessu þegar ég opnaði póstkassann áðan.
Sem er nú eiginlega alveg saga útaf fyrir sig, ég nenni nefnilega aldrei að opna póstkassann minn því reynslan hefur kennt mér að það er aldrei neitt skemmtilegt í honum.
Það sem ég finn í póstkassanum mínum venjulega eru dagblöð sem ég les sjaldnast, reikningar, sem ég opna aldrei og allskonar auglýsingabæklingar sem ég hendi beint í ruslið já og bréf frá ýmsum fyrirtækjum sem eiga að fara til fyrrverandi eignmanns míns. Það eru tvö ár síðan hann flutti héðan. Til hvers að opna póstkassann oftar en maður nauðsynlega þarf? Maður spyr sig. Ekkert nema óþarfa umstang og pappírsburður uppá sjöttu hæð í fullkomnu tilgangsleysi.
Hatur mitt á fólki sem tæmir aldrei póstkassana sína, sem á rætur sínar að rekja til barnæsku minnar þegar ég vann fyrir mér sem blaðburðarBARN til að geta borgað heim svo ég fengi afnot af rúmi og kommóðu, veldur því að ég reyni að muna eftir að tæma þennan pappírspytt ca tvisvar í viku.
Í dag var einmitt fjögurra daga safnhaugur í honum og orðið erfitt að bæta við, svo ég ákvað að tæma. Fyrir BLAÐBURÐARBARNIÐ í mér. Þessi miði var eitt af því fyrsta sem ég sá. Þetta var klukkan fimm. Klukkan sjö fannst ég ráfandi á ægissíðunni með blóðtauma niður ennið.. eða... neinei, en mér brá sko.
Ég er stundum alveg rosalega fljót að hugsa og mun nú rekja hvað ég hugsaði næstu þrjátíu sekúntur eftir að ég sá þennan miða:
What the?.. blóm? Nei. Nú er einhver að villast. Klassískt og ég fæ ónæðið af því. ohhh.. æðislegt. Shit! Kannski er þetta frá tannlækninum mínum því hann veit að ég mun borga honum marga, marga peninga - rétt bráðum. NEI! Kannski er þetta frá kallinum sem situr allt í bílnum sínum á morgnanna að bíða eftir landbúnaðarráðherranum!
KANNSKI ER ÞETTA FRÁ LANDBÚNAÐARRÁÐHERRANUM?
Nei. Af hverju ætti hann að senda mér blóm.
(hugsanarof)
Þetta gæti verið hver sem er. Í öllum heiminum. Interflora.
Blóm um víða veröld.
Ætli hún sé meira víð en breið?
En há?
Bygons.
(hugsanarof)
KANNSKI ER ÞETTA FRÁ JUDE! nei. JACK! NEI JENNIFER!
Nei, það var nú bara þetta eina kvöld og við vorum búnar að tala um að láta eins og það hafi aldrei gerst. Græt það alveg þurrum tárum, góður rass...
Ég á ekki afmæli. Ég man ekki til þess að það hafi neitt gerst merkilegt í dag, fyrir utan að Lennon var skotinn og hann var ekkert skyldur mér.
a.m.k. ekki svo ég viti.
Á ég nýjan eltihrelli sem skiptir við Blómaval?
Kannski eru þetta ekki einu sinni blóm. Kannski er þetta KRANS!
Hér hætti ég að hugsa um þetta. Karlmaður myndi líkleag segja að ég hefði átt að vera löngu hætt að hugsa um þetta, en ég er KONA og sem slík er það SKYLDA MÍN að hugsa OF mikið ALLTAF! Ég er ábyrg manneskja og sinni skyldum mínum af natni.
Ég hringdi í númerið sem ég hef sett svartan kassa yfir - til að vernda þá saklausu - því ég þekki fullt af mönnum sem telja það skyldu sína að vernda mig - fyrir hverju er beyond me.
(hugsanarof)
[Anna fær tölvupóst, skoðar og sér komment frá Alan. Aðrar þrjátíu sekúntur líða á meðan Anna er að meta stöðuna og raða saman upplýsingabrotum. Þegar hún er búin að því tengir hún - EN Anna er þekkt fyrir að tengja vitlaust, ekkert gefið í þessu.]
Varst þú að senda mér blóm Alan??