www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Assholes
Miðvikudagur, 21. desember 2005

Ég kíkti á gestabókina mína áðan og sá að Maggi minntist á að ég hef ekkert skrifað um hunda lengi.

Það er ástæða fyrir því.

Ég er hætt við að fá mér hund og hef ákveðið að spara alla peningana mína til að ég geti farið til útlanda og látið aflita á mér rassgatið.

Þegar ég hef verið að skoða á mér rassgatið undanfarið, eins og fólk gerir, og sýna vinkonum og kunningjum og fólki sem ég hitti á leiðinni í vinnuna, hef ég tekið eftir - og verið sagt - að það er bara alls ekki eins fallegt og það gæti verið, með hjálp svona aflitunar. Ég er líka að hugsa um að fá kannski slaufu í það, eða eyrnalokk til að vera með svona spari.

Eftir að ég las grein um þetta í Blaðinu hef ég séð ljósið, áttað mig á því að fólk hugsar alls ekki nógu mikið um óæðri endann á sér, en hvar værum við án rassgats? Full af skít er ég hrædd um.

Já. Ég ætla að láta aflita á mér rassgatið svo ég geti veifað því framan í vini og ættingja kinnroðalaust..

--

Vá.

Fólk er GEÐ-VEIKT!

--

En svona í alvöru þá liggur hundafíkn mín í dvala því þegar hún náði hápunkti kom Lifur í líf mitt og nærði sálina mína nóg til þess að ég þurfti ekki að eiga hund.

Nú er lifur farin og ég sakna hans. Innan fárra vikna fer ég að þurfa á hundi að halda. Lagið á fóninum hjá mér - í endalausri lúppu - er All by myself me söngkonunni okkar: Celine Dion. Og í restina, þegar hún syngur

all by myseeeEEeeelf.. don't wanna be all by myyyYYyyyself ANYMOoooooooooooooooooooooooooooOOOOOOOOOOOOOOOOoooooooooo
-ooooooooooooooooOOOOOOOOOOOOoRE!"

ALL BY MYSELF - DON'T WANNA LIVE...

AAAAAAaaaaaaAAAAAAAAhaAAA

dON'T WANNA LIVE BY MYSELF, BY MYSELF ANYMORE...

BY MYSEeeeEEEEEEEEEEEEEEeeeeeeeLF..

aNYMORE..

AAAAAAAAAAAAAhaAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHAAAAAAaA

-þá koma tár.

Rosalega plássfrekir textarnir hennar Celin, en þetta er bara svo mikil TILFINNNIING.

En svo er lagið á eftir "Falling in love" með Randy Newman og þá fer ég alltaf í gott skap..

vííííííííííííííííí

your eyelids gettin' heavy.. hard to lift.. you mind begins to wonder.. things start to drift.. your arms are gettin' heavy, hard to lift, you sink down a little deeper your feeling wonderful.. feeling wonderful..

baby you're falling in love, baby you're falling in love..

baby you're...

falling, falling, falling..

falling in love


| anna | 17:50 |
comments

Það er samt merkilegt að sumir eru alger assholes en samt fullir af skít.

Væri ekki annars réttara að segja hringvöðvalokkur en eyrnalokkur í þessu tilfelli?

Nr. 1 | posted by: Kalli | 21.12.2005 | 18:07:21 | [+] |

heh til að komast inn á alþingi þá þarf skíturinn að leka út úr eyrunum á þér, þannig eru þeir vissir um að
1) þú getir ekki neitt
2) skiljir ekki neitt
3) vitir ekki neitt.

Btw Anna, bara svo þú vitir, karlmenn eru einsog hundar, þvaga þædir fyrst.
You know what follows. btw skelltu Michael Bublé einhverntíman á fóninn, hann kann ýmislegt.

p.s. Ég vona að mér sé boðið á sýninguna þegar þú ert búin að aflita á þér rassgatið, ég er mjög artistískur ( hvernig semða er skrifað )

Nr. 2 | posted by: Maggi G | 22.12.2005 | 1:33:12 | [+] |

LOL

Nr. 3 | posted by: anna | 22.12.2005 | 8:28:57 | [+] |

ANNA!

Einmitt thad sem ég óttadist mest hefur gerst! Ég rétt lít of thér og viti menn thú ert farin ad íhuga endatharmsaflitun... af hverju eru konur svona fyrirsjáanlegar?

Hér í Faereyjum er margt mjog ahugavert ad gerast og eg thakka minu saela fyrir hin daglegu postkort sem margeir sendir mer undir seríunafninu "the uncut life of anna & co".

Hann hefur t.d. sagt mér:
1. Jónas dó ekki úr leti, Margeir andadi á hann.... lengi.
2. Margeir er búinn ad kúka í óskilakassann og hlakkar gedveikt til thegar thad verdur talid upp úr honum naest.
3. Jónas kom ekki med jólatrénu heldur er hann Laufeyja úr Margeiri.
4. Ástaedan fyrir thví ad netid virkadi ekki um helgina var ad Marri var ad "leika ser" med braudristina i badkarinu á sama tíma.
5. Ad thetta med tannlaekninn i stigaganginum sé uppspuni.
6. Ad thú sért farin ad eyda fáranlega miklum tíma í naked twister.


Nú thar sem thad er óvíst hvenaer ég kemst naest á Netid aetla ég ad setja ther fyrir heimaverkefni:

1. fara alsber út á stigagang med ipodinn og vera thar í amk eitt lag (c.a. 3 mín). Thetta máttu gera ad nóttu til ef thad er audveldara.
2. Perla merki evrópusambandsins (thegar doddi er sofnadur augljóslega) og setja mynd af thví á síduna.
3. Fondra jólahóru og setja mynd af síduna (eflaust snidugt ad gera thetta líka thegar hinn sydmenntadi heimur sefur.

A alnetskaffihúsinu sem ég sit á Hljómar nú lagid Hello med Lionel Richie, thad finnst mér einhverra hluta vegna fyndid en ég fae hornaugu frá theim faereysku thar sem ég hristist úr einhverfum hlátri.

Verd ad fara... thúsund thorskar á faereyjarbandinu thokast naer.

Nr. 4 | posted by: lifur | 22.12.2005 | 12:27:43 | [+] |

ég mæli eindregið með því að fólk eigi sjer reglulega dekurdag þar sem það nostrar við þá líkamsparta sem verða hvað oftast útundan.

Ég átti til dæmis alveg yndislegan hnjesbótardag með sjálfum mjer í gær þar sem ég tók heilan dag í að gera hnjesbótunum hátt undir höfði, nudda þær, bera á þær smyrsl og tala fallega til þeirra.

Ég held að þú hefðir gott af því, Anna, að eyða degi í rassgatið á þjer.

Nr. 5 | posted by: Ljenzherrann | 22.12.2005 | 12:37:44 | [+] |

Helvítis fávitinn hann Margeir! Hann kúkaði ekkert í óskilakassann! Hann kúkaði í einhverja skólatösku í Hafnarfirði og nú vill fólk meina að honum líði eitthvað illa og sé voða reiður.

Ljóta ruglið.

Það er svo gott að heyra frá þér Lifur.

Ég sakna þín verulega.

Nr. 6 | posted by: anna | 22.12.2005 | 12:49:50 | [+] |

Ég þarf að eyða miklu, MIKLU meira en degi Ljénzherra! Veistu hvað svona aflitun kostar? Ha? Ég þarf að vinna í marga, marga, MARGA daga áður en ég hef efni á þessu.

Lifur finnst þetta ekki smart og mér finnst ekkert rosalega gaman að vinna.

-svo ég er hætt við allt saman og ætla að plokka nefhárin í staðinn.

Nr. 7 | posted by: anna | 22.12.2005 | 12:53:01 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web