www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Allir fá þá eitthvað fallegt..
Sunnudagur, 25. desember 2005

Þetta:

finargjafir.jpg

-og mökkur af star wars dóti er hluti af því sem Doddi fékk í jólagjöf.




Þetta:

gaffall.jpg

er það sem hann hefur leikið mest með í morgun.

Reyndar.. í þessum skrifuðu orðum er bíllinn sem sést á neðri myndinni að ráðast á róbórisaeðluna sem er á efri myndinni.

Magnað.


| anna | 12:05 |
comments

Afhverju fékk ég ekki svona róbórisaeðlu í jólagjöf? Hún hefði getað orðið minn Albert.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 26.12.2005 | 19:44:03 | [+] |

hóhóhó!
Gleeeeeeheeeeðileg jól!!!

en ógeðslega töff: sokkar, svarthöfði, Bó, vörubíll og risaeðla!
Langar í þetta allt!

Í Færeyjum er jólunum fagnað með því að slátra geit sem er hrein mey... Þar sem geiturnar hér eru fáranlega lauslátar urðum við að láta okkur nægja að fórna rostungi sem sagðist hafa verið skýrlífur í meira en áratug og síðan nokkrum þorskum sem voru einhvern veginn kaþólskir í útliti.

Ertu búin að læra heima???
Ha?
ha?
ha?
heldurðu kannski að bara af því það séu jól getir þú bara horft á sjónkann með kisurnar upp í loft og sleppt allri heimavinnu?
ha?
ha?

Djöfull langar mig allt í einu í neftóbak... er það óeðlilegt?
Finnst þér verra ef ég fæ mér rauðan tóbaksklút?
Æi þetta eru kannski of heimspekilegar spurningar fyrir annan í jólum... best að fara að vaxa af sér augnabrúnirnar!

Nr. 2 | posted by: Lifur | 26.12.2005 | 20:00:19 | [+] |

LOTNING!
Þetta EB-verk þitt er svo fallegt að ég táraðist... tárin runnu ofaní lyklaborðið sem er úr viði (af því ég er jú í færeyjum). Þegar ég ætlaði að þerra tárin af með stálull sem var við hönd, fékk ég straum og viti menn nú er ég sjálflýsandi! Hvernig gastu vitað þetta?

Þú saknar fallega! Og ég sakna þín auðvitað geigvanlega líka.

Hvort myndirðu vilja:
a) vera ALGERLEGA hárlaus
b) vera ALVEG loðin (dökk hár eða rauðbirkin) í framan
c) vera með hökutopp í fléttu sem þú mættir alls ekki raka af
d) fara í sleik við Eirík Jónsson

Nr. 3 | posted by: Lifur | 27.12.2005 | 0:23:18 | [+] |

Ég myndi fara í sleik við Eirík Jónsson. Þetta er hin viðkunnanlegasti maður.

Þú saknar mín líka svo fallega.. [bítur í neðri vörina]

Vissirðu að Margeir hefur tekið ástfóstri við klósettmottu? Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera við hann, sveipar þessu um sig eins og minkaslá. Fer honum ekkert illa þannig lagað, skárra en þessi bónus jólapoki sem hann er búin að hafa á hausnum síðustu vikur. Ég ætti náttúrlega að þvo mottuna en það er ekki séns að ná henni eftir að hann myndaði þessi djúpu tilfinningatengsl.

Ég veit ekki hvar hann fann hana og Margeir hefur oft lyktað betur.

LOTNING SJÁLFUR! Með flísar í fingurgómunum af lyklaborðinu, og plástra.. hetjan mín. Snillingurinn minn. Fjarbýlingurinn minn!

Hvernig er það, átti ég ekki að fá jólaoratoríu í pósti? Var þetta bara innantómt loforð? Ha? Ha? Ha?

Hér er mín jólaoratoría til þín. Ég er ekki jafn klár og þú svo ég fékk hjálp frá nokkrum vinum mínum úr blokkinni. Þú verður að fyrirgefa, þetta eru hassreykjandi auðnuleysingjar sem dreymir um að verða frægir í iðnaðarrokkbransanum. In short: fávitar, en ég hafði ekki efni á neinu skárra og þeir sætta sig við að fá borgað í heitum mat.

Þrisvar í viku.

Næstu tíu ár.

The things I do for..

Nr. 4 | posted by: anna | 27.12.2005 | 1:15:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web