www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það er föstudagur
Föstudagur, 16. desember 2005

Fyrsti föstudagurinn án Lifur í 17.280 korter. Eftir daginn í dag eru 26 föstudagar eftir.

Hér áður vissi ég af honum á hinum endanum, útúr tjúnuðum af of miklu kaffi og tilbúinn að munnhöggvast við mig í allan dag út af einhverju random smáatriði.

Those were the days..

Mér finnst ég hvorki heill né hálfur maður (enda er ég kona)
og helst til ósjálfbjarga, því er ver
ef værir þú hjá mér myndi ég glaður (glöð)
verða betri.. en ég er.

Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld. (ein)

Ég gái inní póstinn minn.
hvort skeyti frá þér detti inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég glenni upp í mér glyrnurnar
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.

ég er að brotna niður.


| anna | 9:48 |
comments

Var viljandi sleppt "E-htíma verða öll lifur að deyja..."? Þorðiru ekki stelp... fyrirgefðu, kona?

Kannski skiljanlegt, enda heldur sorglegri seinni hluti lagsins.

kv, tobs

Nr. 1 | posted by: Tobbi G. | 16.12.2005 | 9:58:06 | [+] |

Já ég gerði það viljandi. Lifur er ekki dáinn. A.m.k. mun hann alltaf lifa í hjartanu mínu.

Nr. 2 | posted by: anna | 16.12.2005 | 10:03:13 | [+] |

Hélt það. Ég varð samt að minnast á þetta. Mér finnst setningin nefnilega svo flott, sérstaklega svona á föstudegi. Við breytum bara "lifur" í "menn" aftur. Í textanum þ.e., ekki bókstaflega. Sátt?

kv, tobs

Nr. 3 | posted by: Tobbi G. | 16.12.2005 | 10:31:06 | [+] |

Nei. Ég er ekki sátt. Ég sakna Lifur.

Hann myndi pottþétt segja eitthvað við mig í líkingu við:

Hvort myndirðu vilja fara í sannleikann eða kontor með Ólafi Ragnari eða Dorrit eða báðum?

og ég myndi svara báðum og það væri rétt svar..

og svo myndi hann líka kalla mig hortuga kind eða eitthvað ennþá skemmtilegra sem ég veit ekki hvað er því hann er ekki hérna.

En ég er bara að vorkenna mér sko. Hann er löglega afsakaður þarna í færeyjum að berjast við geislavirku mannætuþorskana og hann hefur lofað mér að koma til baka heill á húfi.

Ég hef hann í bænum mínum.
Þegar hann kemur til baka.

Í 107.

Nr. 4 | posted by: anna | 16.12.2005 | 11:06:40 | [+] |

Akkúrat.

Ég er dugleg og GÓÐ manneskja þótt Margeir sé að bera út rætnar lygar um mig.

Best ég refsi honum duglega í hádeginu. Mig vantar rafgeymi..

Nr. 5 | posted by: anna | 16.12.2005 | 11:35:45 | [+] |

Á bara að taka þetta Abu Ghraib style?

Nr. 6 | posted by: Kalli | 18.12.2005 | 16:53:57 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web