Laugardagur, 17. desember 2005
Ég er búin að taka upp nýtt kerfi á heimilinu.
Það er einn lítill dótakassi geymdur undir skrifborðinu mínu sem heitir "í óskilum". Þegar börnin eru farin uppí rúm og ég vil hafa það huggulegt inní stofu geng ég með þennan kassa um íbúðina og hrúga í hann öllu sem börnin hafa skilið eftir, alveg sama hvað það er.
Það er svo merkilegt.. að þegar ég er búin að þessu er ekki lengur draslaralegt um að líta í íbúðinni.
Kassinn er undir skrifborðinu mínu og vikulega verða börnin að taka allt uppúr honum og ganga frá á sinn stað svo ég geti haldið áfram að hrúga dóti í hann sem á ekki að vera í stofunni.
Þetta er ekkert smá þægilegt.