Miðvikudagur, 23. nóvember 2005
Mér finnst gaman að rökræða (lesist rífast). Þegar ég kom heim úr vinnunni fór ég að rökræða við mann sem ég þekki vel um hvað eru góðar heimasíður og hvað eru vondar heimasíður. Mér finnst það gaman. Honum finnst það leiðinlegt en hann gerir þetta fyrir mig vegna þess að hann er aumingjagóður og dagfarsprúður maður.
Þessi maður sýndi mér heimasíðu sem honum finnst góð - en mér finnst hún arfa slöpp, ég þoli reyndar ekki svona heimasíður.
Getur einhver sagt mér af hverju mér finnst þetta kannski ekkert svo rosalega góð heimasíða? (Fyrir utan að í byrjun birtist síða sem þylur upp hvað þú þarft að hafa gera til að geta skoðað þessa síðu.)
berlinerklamotten.de
Ég er með verkefni sem gerir út um málið, allavega hvað mig varðar. Finnið eitthvað alveg úúúúúúúber cool á síðunni, og sendið mér link á það..