www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Steinliggur
Þriðjudagur, 29. nóvember 2005

Síðast var ég Catwoman og tókst bara helvíti vel upp við gerð búningsins, enda viðaði ég að mér myndum af honum frá öllum mögulegum sjónarhornum eins og sést í galleríinu mínu.

Eftir kvöldið var ég fimm kílóum léttari vegna svitataps.

Það sem kom til greina núna var Lara Croft, Trinity og Wonder Woman.

Lara Croft er nú eiginlega ekki alvöru búningur, ég er alltaf svona. Trinity er ávísun á annað svitabað og með tilliti til upplýsinga sem ég fékk hér á síðunni á föstudaginn og hliðsjón af því að Lifur er Súpermann, blasir við hvað ég verð á grímuballinu næst.



Verðum við ekki sæt saman?

Búningurinn er pís of keik, mökkur af góðum myndum af honum á vefnum. Ég þyrfti hinsvegar að fara fjárfesta í fæðubótaefnum, flytja í ræktina og leggja fyrir pening svo ég eigi fyrir brjóstastækkunaraðgerðinni í mars.

Ég ætti allavega ekki að drepast úr hita í þessu..


| anna | 10:44 |
comments

Finnst þér viðeigandi að vera birta myndir af okkar vinalega heimilisofbeldi á Alnetinu?
Ég hélt ég hefði sagt þér að ég ætla að mæta sem Soffía Hansen í partíið? Þú mátt vera halim...
Ef það klikkar ætla ég að vera umboðsmaður íslenska hestsins, í hverju falli þú getur verið hestur.
Heit?

Nr. 1 | posted by: lifur | 29.11.2005 | 10:56:29 | [+] |

Já, -nei. Ég verð ekkert Halim Al. Vil ekki vera drepin þegar við förum niðrí bæ.

Glætan. Ef þú verður umboðsmaður íslenska hestsins þá er þér ekki boðið. Ég bara get ekki haft hann fyrir augunum. Þú mátt hinsvegar alveg vera.. foli.

Nr. 2 | posted by: anna | 29.11.2005 | 11:09:50 | [+] |

Ef ekkert gerðist milli þín og Batmans vil ég fá skriflega skýringu á því hvers vegna:
1. Mist Eik er með rauð augu.
2. Eilíf Ögn sefur á hvolfi.
3. Breki Dreki notar túrtappa sem tepoka.

Nr. 3 | posted by: lifur | 29.11.2005 | 11:18:57 | [+] |

Hey! Hvað er langt síðan við byrjuðum í fjarbúð? Ha? Nær það mánuði? Við erum bara búin að ákveða nöfnin á þessi grey, þau eru ekki komin í heiminn. Það tekur níu mánuði!!

Ég ber hinsvegar tvíburana Mist Eik og Breka Dreka undir belti og komin viku á leið. Ég nenni samt ekki að nota aðsent efni og sprautu í næsta getnað. Mér finnst það ekki kósí og get aldrei verið viss um að þetta sért þú sem ég er að.. sýsla með.

Nr. 4 | posted by: anna | 29.11.2005 | 11:31:02 | [+] |

Ef tvíburarnir verða glettilega líkir umboðsmanni íslenska hestsins er það Póstinum að kenna ekki mér! ok?

Nr. 5 | posted by: lifur | 29.11.2005 | 11:41:37 | [+] |

Anna: ég ætlaði bara að minna þig á að Lynda Carter var hin eina sanna Wonder Woman. Ef þú ætlar að klæðast búningnum verður þú að taka hana þér til fyrirmyndar. Annars er ég hættur að safna skeggi og tek fram sköfuna á eftir.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 29.11.2005 | 11:43:45 | [+] |

Ég myndi hafa meiri áhyggjur ef tvíburarnir líktust hesti óeðlilega...

Nr. 7 | posted by: Kalli | 29.11.2005 | 11:44:18 | [+] |

Guð! Lifur!

Batman trúði mér því fyrir að hann langar að eignast með mér leðurblöku, hann útúrreyktur þegar hann sagði mér þetta, kannski lét hann drepa póstburðarmanninn og sendi annan til mín sem var með græjur úr honum!

Nr. 8 | posted by: anna | 29.11.2005 | 11:48:43 | [+] |

Hann er ekkert með hundaæði. Ef hann er með svoleiðis þá hefur hann fengið það af leðurblöku, ekki mér. Grínlaust. Ég læt testa mig einu sinni í mánuði ég er svo nojuð yfir því að fá þetta.

Nr. 9 | posted by: anna | 29.11.2005 | 12:04:20 | [+] |

Ég segji að það séu 90% líkur á að þú sért að blöffa.
Má ég sjá tunguna þína?

Nr. 10 | posted by: lifur | 29.11.2005 | 14:05:14 | [+] |

doubt

Nr. 11 | posted by: DonPedro | 29.11.2005 | 23:13:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web