Miðvikudagur, 30. nóvember 2005
Ég er komin heim og það er sem mig grunaði.
Flottroll rúlar.
Hjartanlega til hamingju allir sem unni til verðlauna á Íslensku Vefverðlaununum í kvöld og þá sérstaklega arni.hamstur.is. Ég segi sérstaklega vegna þess að síðan hans er Árni sjálfur, frá a til ö.
Þegar ég mætti á svæðið komst ég að því að umræðan í dag hefur mikið snúist um einhverja mynd sem einhver skarphéðinn tók saman sem átti að færa sönnur á að vefverðlaunin væru klíka fólks og fyrirtækja sem verðlaunar hvort annað.
a) Mér þætti gaman að hitta þann kjána sem lætur sér detta í hug að það sé hægt að finna fólk til að dæma vefina sem er alveg ótengt bransanum OG hefur vit á því hvað það er að gera. -Nema að við leitum út fyrir landssteinana, og hvað? Hver á að kosta það fólk til landsins? Myndi það fyrirtæki þá ekki vinna öll verðlaunin, eða..?
b) Fyrirtækið sem ég vinn hjá hefur styrkt þessi verðlaun frá upphafi og samt sem áður hefur hvorki vefur fyrirtækisins né anna.is komist í útslit, hvað þá unnið. Hvernig má það vera? Ég er í klíkunni! Ekki er fjandinn.com/jonni/ í klíkunni og hann komst í útslit!
hehehe
Að sjálfsögðu munu fyrirtækin sem eyða mestum peningum í að þróa og hanna sína vefi alltaf vera ofarlega í keppni sem þessari. Það er jú verið að verðlauna bestu vefina, ekki satt? Miklir peningar kaupa það sem best er. Og hvað eru Edduverðlaunin annað en runk fólks innan ákveðinnar klíku? Megum við, sem erum í vefbransanum, ekki runka okkur í friði líka? Árlega?
Iss.. what a load of crap.
Ég veit að þeir aðilar í dómnefndinni sem höfðu hagsmuna að gæta voru hreinlega settir til hliðar og aðrir fengnir í þeirra stað í þeim tilfellum sem hagsmunir sköruðust, enda hagsmunir allra sem að þessu standa að þetta sé gert af heiðarleika. Ég er stolt af því að hafa átt þátt í að koma þessu á koppinn á sínum tíma, þó það hafi bara verið með því að segja "já" þegar ungur maður að nafni Hugi, sem ég þekkti nákvæmlega ekki neitt, hringdi í mig fyrir fimm árum og spurði hvort fyrirtækið sem ég vinn hjá myndi sponsa svona verðlaun. Það vildi nefnilega engin sponsa þetta þá en nú slást fyrirtækin um að gera það, enda ýtir svona lagað undir metnað hjá fyrirtækjum og fólki innan bransans að gera betur.
Blasir við.
Já.. og ég er ekkert sérlega hissa þótt vefir sem innihalda eingöngu innsenda tengla vinni ekki til verðlauna. Þetta eru tenglasöfn. Come on.
En nú að öðrum og óskyldum málum.
Það er sorglegt, svo ég noti orð Dórsins, að ég geti ekki fjármagnað flottrollið sem ég hef fundið. Ég get bara fengið það að láni. Því eins og Halldóri varð að orði áðan þegar hann sá mig: "djöfull ertu skuggalega flott, þú átt alltaf að vera svona".
Hann er ekki að segja mér neinar fréttir. Auðvitað á ég alltaf að vera svona. Og það styttist í að ég hafi efni á því.
Það styttist..


BOOJAH!